Bandaríska stuttþáttaröðin Band of Brothers kom út árið 2001, gerð af Steven Spielberg og Tom Hanks eftir samnefndri bók sagnfræðingsins Stephen E. Ambrose frá 1992. Þáttaröðin, sem samanstendur af tíu þáttum, er af mörgum talin sú besta sem gerð hefur verið og er hún með 9,4 í einkunn á IMDB og í fjórða sæti yfir bestu þáttaraðir allra tíma að mati notenda vefsins.
Samkvæmt frásögn leikarans James McAvoy var bræðralagið þó ekki alls ríkjandi við tökur því hann segist hafa orðið fyrir einelti af hálfu eins meðleikara sinna.
McAvoy sagði í þættinum Watch What Happens Live á mánudag að umræddur maður væri einn þeirra sem sæjust á hópmyndinni sem þáttastjórnandinn Andy Cohen sýndi áhorfendum. Á myndinni mátti sjá þá Donnie Wahlberg, Kirk Acevedo, Scott Grimes, Neal McDonough, Philip Barantini, Adam James, Frank John Hughes og Ross McCall. Þótt McAvoy hafi ekki nefnt eineltissegginn á nafn, staðfesti hann að það hefði ekki verið David Schwimmer.
McAvoy, sem er einnig þekktur fyrir hlutverk sitt í þáttunum Shameless, lýsti síðan atvikinu sem átti sér stað fyrsta daginn hans við tökur á þáttunum árið 2001, nánar tiltekið við tökur á „einni af þessum senum þar sem allir koma við sögu ... á bar“.
„Þessir menn höfðu verið með í níu eða tíu mánuði og fengu kannski eina setningu í einum þætti og aðra tíu þáttum síðar. Þeir voru allir brjálaðir. Ég kom inn í einn þátt og fékk heilan söguþráð og senur. Ég fékk helling af texta.“
McAvoy lék hermanninn James W. Miller í fjórða þættinum, sem ber heitið Replacements.
„Það var þannig að einn af strákunum á myndinni ákvað að leggja mig í einelti, á fyrsta degi mínum sem atvinnuleikari eftir leiklistarnámið. Hann fékk félaga sína til að standa og benda á mig og hlæja að mér í svona þrjár mínútur.“
Cohen greip inn í og lýsti augnablikinu sem „hræðilegu“. McAboy sagði frá því að þeir Dexter Fletcher og Robin Laing hefðu þá tekið hann til hliðar og sagt: „Komdu og vertu með okkur.“
Þótt McAvoy hafi gefið þessum degi á tökustað einkunnina tvo af tíu, tók hann fram að upplifunin í heild sinni hafi fengið níu.
Í þættinum ræddi hann einnig um önnur verkefni á ferli sínum, en hann hefur hlotið tilnefningu til Golden Globe-verðlaunanna. Hann lýsti tímabilinu í kringum frumraun sína í kvikmyndum, The Near Room frá 1995, sem „frábæru“ þrátt fyrir að hann hafi verið „skelfingu lostinn“. Þegar kom að því að leika í Narníu-sögunum (e. The Chronicles of Narnia) áratug síðar, lét hann vel af reynslunni og gaf henni fullt hús stiga, eða 10 af 10. „Ég lék geitarmanninn sem var alltaf í stuði. Ég var í um það bil sex mánuði á Nýja-Sjálandi en vann aðeins í 20 daga. Þannig að ég fór bara í gönguferðir og útilegur. Þetta var frábært.“