Leikarinn RJ Mitte lést í Brownsville í Texas í gær, mánudaginn 12. október. Umboðsaðilar leikarans staðfestu í nótt að hann hefði látist, 34 ára að aldri. Fulltrúi hans staðfesti síðar við tímaritið PEOPLE að hann hefði fallið fyrir eigin hendi.
„Það er með mikilli sorg sem við tilkynnum hið hörmulega fráfall hins ástsæla leikara, góðgerðarmanns og ötula talsmanns réttinda fatlaðra, RJ Mitte. Við biðjum fólk um að virða einkalíf fjölskyldu og nánustu aðstandenda RJ Mitte á þessari stundu.“
Mitte, sem þekktastur var fyrir hlutverk sitt í þáttunum Breaking Bad, birti færslu á Instagram örfáum dögum fyrir andlát sitt þar sem hann lýsti yfir löngun til að endurvekja persónu sína úr þáttunum, Walter White yngri. Í færslunni deildi Mitte broti úr viðtali í hlaðvarpi Joe Vulpis, þar sem hann lýsti því yfir að hann teldi ekki að þetta hefði verið endirinn fyrir persónu hans í Breaking Bad.
„Ég held ekki að þetta hafi verið endirinn. Ég held að þetta hafi í raun verið endirinn á vegferð Heisenbergs, en ég held ekki að þetta hafi verið endirinn á vegferð Skyler, Walts og Holly,“ sagði hann. „Ég held að það séu margar ósvaraðar spurningar þarna sem munu líklega aldrei fá svar fyrir þau. Þannig að ég held að það sé enn stórt skref framundan fyrir White-fjölskylduna.“ Mitte bætti við: „Það er meira sem þarf að segja frá. Það er alltaf meira sem þarf að segja, en maður verður að gera það á réttan hátt.“
Margir hafa minnst Mitte með kveðjuorðum, þar á meðal fBryan Cranston, sem lék föður hans í Breaking Bad.
„Ég er haldinn mikilli sorg á meðan ég skrifa þetta í kvöld. RJ Mitte, kæri sonur minn úr Breaking Bad, er látinn. Ég hitti hann þegar hann var aðeins 14 ára gamall, þegar hann var valinn í hlutverk Walter White yngri, hlutverk sem hann lék af mikilli gleði og eldmóði.“
Cranston bætti við: „Við vorum að skiptast á skilaboðum fyrir örfáum vikum að reyna að finna tíma til að hittast í hádegismat. Ég veit ekki hvort sá hádegisverður hefði breytt framtíð hans. En ég veit að ég elskaði hann og naut þess svo sannarlega að vera með honum í gegnum árin í þáttunum, og eftir að kastljósið sem beindist að Breaking Bad* fór að dofna...Ég mun sakna þín, sonur.“
Mitte, sem var með CP hreyfihömlun (e. cerebral palsy), barðist lengi fyrir aukinni vitund um fötlun, hann var sendiherra samtakanna United Cerebral Palsy og Shriners Children’s og forseti Mitte-sjóðsins.
Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.