Fókus

Inga Lind selur miðborgarperluna

Mynd
Inga Lind Karlsdóttir

Inga Lind Karlsdóttir, ein eigenda Skot Productions, hefur sett einbýlishús sitt við Barónsstíg 16 í miðborginni á sölu. 

Eignin er 155,1 fm að stærð byggt árið 1906, skiptist í húsið, sem er 136,4 fm og sérstæða 18,7 fm vinnustofu/gestahús á lóðinni sem er ekki skráð.

Mynd
Mynd

Inga Lind keypti húsið fyrir tveimur árum og hefur endurnýjað það töluvert með virðingu fyrir aldri og anda hússins. 

Mynd

Fallegur panill, loft- og gólflistar, rósettur í loftum og pólýhúðaðir pottjárnsofnar setja svip sinn á eignina. Lóðin er afgirt með sólríkum, hellulögðum bakgarði og fallegu, upphituðu Serralux gróðurhúsi. Bílastæði með rafknúnu hliði er á lóð þar sem auðveldlega komast tveir bílar fyrir.      

Mynd

Eignin er skráð á tveimur fastanúmerum og skiptist í: efri hæð og ris, 87,3 fm, þar sem er eldhús, stofur, gestasnyrting, tvö-þrjú svefnherbergi og baðherbergi auk geymslulofts. 

Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd

Á jarðhæð er 49,1 fm tveggja herbergja íbúð með sérinngangi. Íbúðin skiptist í eldhús, stofu, svefnherbergi og baðherbergi. 

Mynd

Á baklóð er 18,7 fm sérstæð vinnustofa/gestahús sem ekki er inni í skráðum fermetrum. Húsið nýtist í dag sem gestahús, þvottahús og geymsla. 

Mynd

Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.