Bandaríski leikarinn Bryan Cranston er harmi sleginn eftir andlát RJ Mitte, sem lék son hans í hinum geysivinsælu sjónvarpsþáttum Breaking Bad. Mitte lést í gær, aðeins 34 ára að aldri, en samkvæmt fréttum bandarískra fjölmiðla er talið að hann hafi svipt sig lífi.
Cranston, sem lék Walter White í þáttunum, birti hjartnæma færslu á Instagram þar sem hann minntist leikarans unga og rifjaði upp síðustu samskipti þeirra. Að sögn Cranston höfðu þeir rætt um að hittast í hádegismat fyrir aðeins nokkrum vikum.
„RJ Mitte, elskulegur sonur minn í Breaking Bad, er látinn,“ skrifaði Cranston og birti mynd af þeim saman.
Hann sagðist hafa kynnst Mitte þegar hann var aðeins 14 ára og fékk hlutverk Walter White yngri. Þrátt fyrir ungan aldur hefði Mitte tekist á við krefjandi tökur af mikilli einurð og smám saman orðið að framúrskarandi leikara.
Mitte greindist með væga heilalömun á barnsaldri en lét fötlun sína aldrei koma í veg fyrir að hann elti drauma sína. Hann varð síðar ötull talsmaður réttinda fatlaðs fólks innan skemmtanaiðnaðarins.
Cranston sagði sérstaklega sárt að hugsa til þess að þeir hefðu verið í sambandi skömmu fyrir andlátið.
„Það er sérstaklega átakanlegt að heyra að hann hafi svipt sig lífi. Hvers vegna? Við vorum að skiptast á skilaboðum fyrir aðeins nokkrum vikum og reyna að finna tíma til að hittast í hádegismat.“
Hann bætti við:
„Ég veit ekki hvort þessi hádegisverður hefði getað breytt framtíð hans. En ég veit að ég elskaði hann og naut þess innilega að vera með honum öll árin sem við unnum saman að þáttunum, og einnig eftir að kastljósið á Breaking Bad slokknaði. Ég mun sakna þín, sonur.“
Fleiri leikarar úr Breaking Bad hafa minnst Mitte með hlýjum orðum.
Aaron Paul, sem lék Jesse Pinkman, sagðist gjörsamlega niðurbrotinn yfir fréttunum.
„Ég er orðlaus. Ég er harmi sleginn yfir þessum fréttum. RJ, ég elska þig, vinur minn. Þín verður sárt saknað.“
Dean Norris, sem lék Hank Schrader, sagðist vart trúa tíðindunum. Hann rifjaði upp að hafa alltaf litið eftir Mitte þegar hann var ungur drengur á tökustað.
„Hann var einstaklega ljúfur ungur maður og hans verður sárt saknað. Þetta er svo átakanlegt að ég trúi þessu varla.“
Mitte kom fram í 56 þáttum af Breaking Bad á árunum 2008 til 2013. Hann trúlofaðist kærustu sinni, Kennedy Suarez, á síðasta ári og hafði lýst mikilli tilhlökkun yfir framtíð þeirra saman.
Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.