Fókus

Spæjari, klámstjarna og þingkona - Ótrúlegur ferill konunnar sem elskar að vera ögrandi

Mynd

Þegar hin ungverska Ilona Staller gekk upp að altarinu aðeins tvítug að aldri árið 1971 lýsti presturinn henni sem sorgmæddustu brúði sem hann hefði nokkurn tímann séð. Það átti við rök að styðjast. Þó að hún hafi játast unnusta sínum, 25 ára gamla Ítalanum Salvatore Mercuri, þegar hann fór á skeljarnar hafði hún skipt um skoðun. Hún kastaði hringnum sem hann gaf henni í snjóinn og ætlaði ekki að gifta sig. Stjúpfaðir hennar neyddi hana upp að altarinu til að forða fjölskyldunni frá niðurlægingu.

Ilona hafði þá strax vakið athygli fyrir fegurð sína, en hún var tæplega 13 ára þegar hún fór að vinna sem fyrirsæta fyrir ungverska fréttamiðilinn Magyar Távirati Iroda. Sjálf segir Ilona í endurminningum sínum að í því starfi hafi hún njósnað um bandaríska diplómata fyrir ungversk stjórnvöld. Aðeins tvítug hafði hún þegar nælt sér í vinnutitlana fyrirsæta og spæjari. Titlarnir áttu þó eftir að verða fleiri.

Klámstjarnan

Eftir að hún var þvinguð í hjónaband flutti hún til Ítalíu með eiginmanni sínum og þar vakti hún athygli klámmyndaleikstjórans Riccardo Schicchi. Hún tók að sér nokkur lítil hlutverk í ljósbláum klámmyndum en það voru ekki kvikmyndirnar sem fengu frægðarsól hennar til að rísa heldur ögrandi útvarpsþáttur hennar Voulez-vous coucher avec moi? þar sem hún notaði sviðsnafnið Cicciolina. Hún hélt áfram að birtast í ljósbláu efni og frægt varð það árið 1978 þegar hún var fyrst kvenna til að bera brjóstin í beinni útsendingu í ítalska sjónvarpinu. Hún sat svo fyrir nakin í Playboy-tímaritum nokkurra landa, fyrst í Argentínu árið 1988, Bandaríkjunum árið 1990 og svo í Ungverjalandi, Serbíu og Mexíkó árið 2005.

Eiginmaður hennar, Marcuri, var ekkert sérstaklega hrifinn af þeim ferli sem kona hans hafði valið sér og þau skildu eftir að hafa aðeins verið gift í um það bil ár. 

Hún gifti sig aftur árið 1991, þá bandaríska listamanninum Jeff Koons, sem lýsti henni sem listagyðju sinni og innblæstri. Saman gerðu þau röð högg- og ljósmynda sem sýndu þau stunda kynlíf í ýmsum stellingum, aðstæðum og búningum. Árið 1992 fæddist þeim sonur en hjónabandið varð þó ekki langlíft. Árið 1993 voru þau skilin að borði og sæng, þar sem Ilona hafði neitað að hætta í kláminu. Ilona gerðist þá glæpamaður er hún flutti til Ítalíu með son þeirra þrátt fyrir að Koons hefði fulla forsjá. 

 

 

Stjórnmálamaðurinn

Þar með erum við komin með titlana: fyrirsæta, spæjari, klámmyndaleikkona og útvarpsstjarna. Hún kolféll fyrir Ítalíu eftir að hún flutti þangað og vildi taka þátt í að gera landið að betri stað. Undir lok áttunda áratugarins hafði traust Ítala til kjörinna fulltrúa þeirra sjaldan verið minna og var því líklega þess vegna tekið fagnandi þegar Ilona sneri sér að stjórnmálum. Hún bauð sig fram til þings fyrir hönd Lista del Sole, fyrsta umhverfisflokks Ítalíu, árið 1979 en árið 1985 skipti hún um flokk og gekk til liðs við Róttæka flokkinn og fyrir hann var hún kosin á þing árið 1987.

Nú gætu sumir haldið að Ilona hafi snúið sér að stjórnmálum til að láta taka sig alvarlega og til að hrista af sér klámstjörnustimpilinn. En það var ekki svo. Ilona var stolt af ferli sínum og elskaði að vera ögrandi. Má sem dæmi nefna að á dögum Persaflóastríðsins bauðst Ilona til að stunda kynmök við Saddam Hussein í skiptum fyrir frið.

Þegar kjörtímabilinu var lokið virtust kjósendur þó komnir með nóg af henni. Árið 1991 stofnaði hún stjórnmálahreyfingu með annarri klámstjörnu, Moana Pozzi. Flokkurinn kallaðist Ástarflokkurinn og hlaut ekki brautargengi. Hún gaf drauminn þó ekki upp á bátinn. Hún reyndi árið 2002 að komast á þing í Ungverjalandi en tókst ekki að safna nægum undirskriftum. Sama ár bauð hún sig fram í sveitarstjórnakosningunum í ítölsku borginni Monza en tókst ekki að heilla kjósendur með loforði um að breyta þekktri byggingu í spilavíti og þótti loforðið alveg jafn óheillandi þegar hún tilkynnti framboð sitt til embættis borgarstjóra Milan tveimur árum síðar. Árið 2002 ítrekaði hún loforðið um að sænga hjá Saddam Hussein í von um að Írak léti undan þrýstingi alþjóðasamfélagsins um að heimila rannsókn á meintum gjöreyðingavopnum. Sama boð fékk Osama bin Laden árið 2006.

Það vakti svo reiði árið 2011 þegar Ilana, þá sextug, byrjaði að þiggja eftirlaun vegna þeirra fimm ára sem hún sat á ítalska þinginu. Ilona svaraði gagnrýninni og sagði: „Ég vann mér þetta inn og er stolt af því.“ Árið 2012 stofnaði hún stjórnmálaflokk sem kallaðist Lýðræðis-, náttúru- og ástarflokkurinn en eitt helsta stefnumál flokksins var að lögleiða hjónabönd samkynhneigðra, að enduropna vændishús, að tryggja ungu fólki lágmarkslaun, umbætur í dómskerfinu og að afnema forréttindi ríku stjórnmálastéttarinnar. Flokkurinn hlaut ekki brautargengi.

Mynd
Mynd/Getty

Stórkostlega óviðjafnanlegt

Hún var fyrirsæta, spæjari, klámmyndaleikkona, útvarpsstjarna og stjórnmálakona. Hún var líka söngvari og gaf út nokkur lög þar sem grófir textar voru sungnir við barnalega laglínu. Sumir textarnir þóttu svo grófir að það mátti ekki spila lögin í útvarpi. Ekki nóg með það heldur þykir hún líka öflugur skákmaður.

Fyrir nokkrum árum sagði Ilona í viðtali um líf sitt: „Ég hef lifað stórkostlega óviðjafnanlegu lífi – fallegu, en ómögulegu fyrir aðra að upplifa.“

Illona er í dag 74 ára og er hvergi nærri hætt að ögra. Hún lýsir sér fyrst og fremst sem listakonu sem brennur fyrir samfélaginu í kringum sig, þá einkum fyrir umhverfisvernd, mannréttindum, lýðræði, frið og frjálsum ástum.