Egils Appelsín hefur fylgt þjóðinni í meira en sjötíu ár, í mesta skammdeginu er því blandað við Malt eða Jólaöl til að búa til hátíðardrykk þjóðarinnar og á sumrin er það hinn klassíski svaladrykkur. Þess vegna eru það alltaf tíðindi þegar það kemur nýtt bragð eins og Blóðappelsínið sem má finna víða í verslunum. Eins og nafnið gefur til kynna er bragðið af blóðappelsínum í stað venjulegra appelsína. Blóðappelsínið er einnig með grafík sem gefur til kynna blóð sem þá tilvísun í hrekkjavökuna. Í vörulýsingu á vef Ölgerðarinnar má finna eftirfarandi ljóð:
Blóð-litað eins og rósin rauða
Þér rykkir inn í kvöl og dauða
Í óttasporum föst við frjósum
frammi fyrir þessum dósum!
Þú verður nú með krafti kysstur
af kaldri dós, því þú ert blóðþyrstur…
Það heyrir enginn hrópin þín
Því hér er það komið - BLÓÐ APPELSÍN
Þónokkrar umræður hafa skapast um nýja Appelsínið í hópnum Matartips! á Facebook. Þar segir málshefjandi:
„Ég var að smakka þetta nýja Appelsín frá Ölgerðinni. Hvílík snilld sem þetta er!”
Sölvi nokkur tekur undir það:
„Ég get ekki stoppað það er æði!“
Arna nokkur tekur í sama streng: „Ógeðslega gott.“
Jónas nokkur er alls ekki sama sinnis:
„Viðbjóður greinilega komið beint frá djöflinum. Vont eftirbragð og bara allt vont við þetta.“
Óhress með sykurleysið
Berglind nokkur lenti í þekktu vandamáli með sína dós:
„Nei ég keypti mér eina og var mjög spennt að smakka en einhver annar á heimilinu stal henni úr ísskápnum svo ég ætla að kaupa aðra og drekka hana strax.“
Jón nokkur spurði þá:
„Er þetta ekki bara venjulegt sykursull sem gerir mann feitan?“
Það er nefnilega málið, Blóðappelsínið er einungis fáanlegt sykurlaust og eru margir óhressir með það.
„Hætti við að kaupa þegar ég fann bara sykurlaust,“ segir Hildur nokkur.
Hildigunnur nokkur skorar á Ölgerðina að gefa það einnig út í sykraðri útgáfu:
„Allt í lagi en ég vildi óska að hann væri til með sykri. Finn alltaf gervisætubragðið og það er ekki gott (gersamlega óþolandi að fara á veitingastaði þar sem er sjálfsafgreiðsla á gosi í pumpu og eingöngu boðið upp á sykurlaust),“ segir hún. Helga nokkur tekur undir með Hildigunni þar sem henni finnst gervisætubragðið of áberandi.
Karen nokkur einnig óhress:
„Langar t.d. geðveikt að smakka Ananas- og kókos-djúsþykknið, en það er bara til "sykurlaust" og því bara með gervisykri, sem ég þoli ekki bragðið af. Geðveikt svekkjandi.“
„Fínn í vodkann“
Miklar umræður sköpuðust um sykurleysi almennt í gosdrykkjum en misjafn er smekkur manna. Einn nafnlaus notandi skilur ekkert í áhuga fólks á sykruðu gosi þar sem það skilji eftir sig sykurleðju á tönnunum.
Birgir nokkur drekkur ekki nýja Appelsínið beint úr dósinni:
„Fínn í vodkann.“
Alexandra nokkur segir að hann minni smá á Kristal Plús, nema betri. Þá segir Sara:
„Vó! Ég var að smakka í þessum töluðum.“