Fókus

Ragnhildur segir meðalmanninn eyða þetta löngum tíma í símann og samfélagsmiðla

Mynd
Ragga Nagli Mynd: Hanna

Ragnhildur Þórðardóttir, Ragga Nagli, er klínískur heilsusálfræðingur og einkaþjálfari. Á Facebook heldur hún úti vinsælli síðu þar sem hún birtir reglulega pistla um hreyfingu, mataræði og fleira. 

Í nýlegum pistli fer Ragga yfir notkun síma og samfélagsmiðla og deilir eigin ráðum um notkun þeirra. 

„Meðalmaðurinn kíkir á símann sinn 185-325 sinnum á dag og eyðir 2-3 klukkustundum á samfélagsmiðlum. Það er einn og hálfur mánuður á ári bara að ýta þumli eftir skjá og horfa á eitthvað sem skilur lítið eftir sig.

Þegar þú skrollar símann í bælinu löngu eftir háttatíma ertu að stela dópamíni frá morgundeginum. Svo vaknarðu vansvefta og dagurinn eins og að vaða gegnum síróp í Nokia stígvélum og með reglulegu millibili grýtirðu þér yfir símann til að keyra upp dópamínið.

Skoðar Tik Tok yfir Seríósinu. Yfir kaffibollanum í vinnunni tjekkar hversu mörg læks á nýjustu Insta færsluna. Skrollar Vísi við hliðina á raspleginni ýsu í mötuneytinu. Tekur auðvitað dúddann með á tojlettið eftir hádegismatinn. Á biðstofunni hjá tannsa tekurðu upp símtækið og opnar öll öppin. Kíkir aaaaðeins á milli setta í ræktinni sem síðan endar í svartholi samfélagsmiðla og 4-5 mínútna pásu. Á meðan bíður annar ræktarmelur eftir tækinu með samanherptar rasskinnar í pirringi.“

Mynd

Ragga segir að heilinn í okkur sé ekki gerður til að taka á móti svona mörgum áreitum og upplýsingum á stuttum tíma og svona oft yfir daginn. Heilinn er yfirfullur af alls konar óþarfa sem þarf síðan að vinna úr, flokka og sortéra eins og pappa og plast í grænar og bláar tunnur.

„Dópamínið keyrist í hæstu hæðir því við erum alltaf að sjá eitthvað nýtt, spennandi, litríkt með bjöllum og tónlist. Ekkert öðruvísi en að sitja í spilavíti í Las Vegas og húrra tíköllum í spilakassa. Stöðugt skroll og skrum skapar streitu og yfirkeyrt taugakerfi. Við þurfum fleiri andartök af engu, núll, nada. Að taka inn eðlileg áreiti úr umhverfinu með öðrum skynfærum en bara augum og eyrum.“

Mynd

Ragga segir að með því að tileinka okkur umgengnisreglur við símtækið getum við komið jafnvægi á dópamínið, gefið heilanum raunverulega pásu og skapað raunveruleg tengsl.

„Að leggja frá sér símann og horfa á fólkið í kring. Að geyma símann í töskunni þegar við erum með fólki í kjötheimum og veita því óskipta athygli. Það úsar út oxýtócíni sem veitir vellíðan, styrkir ónæmiskerfið og græðir sár. Við virkjum framheilann með að nota símann til að skapa og skrifa, hlusta og fræðast, frekar en að skrolla út í bláinn. Og það allra besta sem við gerum fyrir okkar mikilvægustu heilsuvenju, svefninn, er að setja hann í saltpækil eftir kvöldmat þar til á morgun.“

Að lokum spyr Ragga: „Hverjar eru þínar umgengnisreglur um símann og samfélagsmiðla?“