Leikkonan Selma Blair var handtekin eftir að hafa gengið berserksgang í flugi. Frá þessu greinir TMZ sem hefur það eftir vitnum og hljóðupptökum sem miðlinum hafa borist vegna atviksins.
Blair mun hafa komist í uppnám í fluginu. Hún reyndi að opna dyrnar á vélinni, sem eðlilega er stórhættulegt á meðan á flugi stendur. Leikkonan veittist svo að flugfreyju sem reyndi að stöðva hana með ofbeldi. Var þá haft samband við flugturninn þar sem óskað var eftir því að heilbrigðisstarfsfólk væri í viðbragðsstöðu þegar vélin lenti enda hefðu starfsmenn hlotið áverka í átökum við leikkonuna, þar með talið höfðu starfsmenn fengið bitför og blóðnasir.
Að sögn miðilsins má á upptöku heyra leikkonuna öskra eins og brjálæðingur þegar hún gekk frá flugvélinni á JFK-flugvellinum í New York. Eins mátti heyra í viðvörunarbjöllum. Flugfreyja mun nú vera með áverka eftir að leikkonan beit hana. Samkvæmt vitnum fór það svo að binda þurfti leikkonuna við sæti sitt í vélinni og svo var hún handtekinn eftir lendingu og flutt til aðhlynningar á sjúkrahúsi. Um borð í sjúkrabílnum mun leikkonan hafa ítrekað sparkað í höfuð lögreglumanns sem fylgdi henni og eftir að hún kom á sjúkrahúsið er hún sögð hafa ráðist á hjúkrunarfræðing. Hefur leikkonan nú verið kærð fyrir tvær líkamsárásir, annars vegar gegn lögreglumanninum og hins vegar gegn hjúkrunarfræðingnum. Leikkonan mun nú gangast undir geðmat.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem leikkonan hefur misst stjórn á sér í flugi, en hún var árið 2016 fjarlægð úr flugi á sjúkrabörum. Leikkonan er þekktust fyrir kvikmyndirnar Cruel Intentions, Legally Blonde, The Sweetest Thing og Hellboy. Eins hefur hún undanfarin ár talað opinskátt um líf sitt með MS-sjúkdóminn.
Variety hefur það eftir talsmanni leikkonunnar að hegðunina megi rekja til bráðra veikinda.