Söngkonan og spjallþáttastjórnandinn Kelly Clarkson tekur alls ekki vel í afsökunarbeiðni verslunarinnar í New York, eftir að Clarkson gagnrýndi verslunina harðlega um helgina eftir nýlega verslunarferð.
Verslunin er Art of Play í Brooklyn í New York og sagði Clarkson að starfsfólk verslunarinnar hefði gefið sér að hún hefði ekki efni á hlut sem hún sýndi áhuga og birti í kjölfarið harða gagnrýni. Á sunnudag birti verslunin eins konar afsökunarbeiðni á Instagram á sunnudag. Þar útskýrðu þau jafnframt að hluturinn umræddi væri ekki til sölu. Clarkson gefur þó lítið fyrir afsökunarbeiðnina.
„Þannig að allt það samtal sem við áttum, þegar ég spurði hvort verkið væri til sölu á meðan ég benti á verðmiðann á veggnum þar sem stóð Singing Bird, átti sér aldrei stað? Það gerðist ekki þegar þú horfðir á mig frá toppi til táar og sagðir í niðurlægjandi tón: ‚Já, það er til sölu en kostar 15.000 dollara (rúmlega 1,8 milljón króna), svo ef þú vilt að ég finni eitthvað sambærilegt handa þér þá get ég það,‘“ bætti Clarkson við.
„Þetta gerðist allt saman ekki og nú er verkið ekki lengur til sölu. Allt í lagi, fínt. Þú ert sem sagt ekki bara dónalegur, heldur líka lygari.“
Clarkson kom einnig inn á það að eigendur verslunarinnar hefðu, samkvæmt eigin orðum í færslu þeirra, „skyndilega orðið fyrir árás 8 milljóna manna“ og upplifað „óraunverulegt ástand“ vegna viðbragða aðdáenda hennar.
„Annars styð ég auðvitað lítil fyrirtæki; ég var jú stödd í einu slíku til að versla. Ég hef miklar mætur á litlum fyrirtækjum, veit að þau skipta máli og styð þau alltaf, en það gefur manni ekki leyfi til að koma illa fram við fólk í versluninni sinni bara af því að um lítið fyrirtæki er að ræða. Það er ekki svo erfitt að vera vingjarnlegur. Ég tala sjaldan illa um fólk opinberlega, en þú, vinur minn, varst undantekning. Verslunin þín er virkilega flott,“ sagði hún að lokum. „Því miður á það ekki við um þig.“
Clarkson gagnrýndi verslunina fyrst á laugardaginn vegna slæmrar verslunarupplifunar og líkti sér við Juliu Roberts í kvikmyndinni Pretty Woman. Sagðist Clarkson hafa upplifað hálfgert Pretty Woman augnablik og vísaði þar til þegar persóna Juliu Roberts fær ekki afgreiðslu í snobbaðri verslun sökum þess hver hún er og hvernig hún lítur út.
„Ég ók alla leið til Brooklyn til að skoða þessa verslun sem mér fannst líta virkilega vel út og ætlaði að kaupa mér nokkra hluti, en var í raun og veru horft á mig eins og ég hefði ekki efni á vörunum; mér var sagt að hann gæti fundið eitthvað sambærilegt handa mér,“ skrifaði hún á X. „Vá, maður,“ hélt Clarkson áfram og virtist beina orðum sínum að tilteknum starfsmanni sem hún hafði átt samskipti við. „Þú ert hálfviti og misstir einmitt af stórri sölu.“
Clarkson lauk færslunni með því að hvetja 8,8 milljónir fylgjenda sinna á samfélagsmiðlinum til að kíkja á verslunina Art of Play í Brooklyn, „ef þið hafið gaman af því að fá sömu meðferð og persóna Juliu Roberts í myndinni Pretty Woman. Endilega kíkið á þetta.“
Auk skýringarinnar varðandi syngjandi fuglinn svaraði Art of Play á samfélagsmiðlum sínum: „Hjá Art of Play er fólk jafnvelkomið, hvort sem það kemur til að versla eða bara til að skoða sig um,“ og bætti við þökkum til stuðningsmanna sinna ásamt athugasemd um að margir „dvelji tímunum saman við að njóta þrautanna, spilanna og leikfanganna okkar.“