Walter Willett, 81 árs prófessor við Harvard-háskóla, hefur varið stórum hluta ævinnar í að rannsaka áhrif mataræðis á heilsu fólks. Hann hefur birt þúsundir vísindagreina og er talinn sá næringarfræðingur í heiminum sem oftast er vitnað til í vísindaritum.
Í viðtali við bandaríska dagblaðið The Washington Post fer Willett yfir eigin matarvenjur, hvað hann borðar á dæmigerðum degi og hvaða matvæli hann telur mikilvægust fyrir góða heilsu.
Willett hefur meðal annars gagnrýnt þá útbreiddu hugmynd að fitusnautt mataræði sé sjálfkrafa hollara en annað mataræði. Að hans mati skipta gæði fitunnar og kolvetnanna meira máli en magnið.
Miðjarðarhafsfæðið í aðalhlutverki
Willett segist sjálfur fylgja mataræði sem byggist að mestu á Miðjarðarhafsfæði. Þar eru heilkorn, grænmeti, ávextir, hnetur, baunir og ólífuolía í aðalhlutverki, en minna er borðað af kjöti og mjólkurvörum.
Hann segir ávinninginn fyrir heilsuna margvíslegan. Ómettuð fita geti meðal annars lækkað magn slæms kólesteróls í blóði, grænmeti stuðlað að lægri blóðþrýstingi og omega-3-fitusýrur úr fiski dregið úr hættu á hjartsláttartruflunum.
Þá geti ýmis næringarefni í þessu mataræði dregið úr insúlínviðnámi og bólgum í líkamanum.
Bláber á hverjum degi
Morgunmaturinn er yfirleitt sá sami. Willett borðar grófa hafra með grískri jógúrt, hnetum og ávöxtum. Sérstaka áherslu leggur hann á bláber, sem hann reynir að borða flesta daga.
Hann segir rannsóknir benda til þess að ber, sérstaklega bláber, geti haft verndandi áhrif gegn sjúkdómum á borð við Alzheimer og Parkinson, þótt frekari rannsókna sé þörf.
Með morgunmatnum drekkur hann lítið glas af appelsínusafa. Hann segir rannsóknir hafa sýnt tengsl milli reglulegrar neyslu hans og minni hnignunar hugrænnar getu.
Hádegismaturinn tekur þrjár mínútur
Í hádeginu borðar Willett yfirleitt eingöngu mat úr jurtaríkinu. Í vinnunni fær hann sér gjarnan stórt salat með kjúklingabaunum, hnetum, hummus, tófú og ólífuolíu.
Heima fyrir velur hann einfaldari kost: Heilkornabrauð með hnetusmjöri, örlítilli sultu eða hunangi og gulrót með. Máltíðin tekur innan við þrjár mínútur að útbúa og kostar að hans sögn aðeins 72 bandarísk sent.
Í kvöldmat borða hann og eiginkona hans yfirleitt fisk eða kjúkling, gjarnan með grænmeti og heilkornum. Þegar hann er einn heima útbýr hann sér oft salat með ólífum, grænmeti og ostrum eða kræklingi úr dós.
Milli mála heldur hann sig við epli og gulrætur. Hann segist áður hafa þyngst um rúm tvö kíló þegar hann borðaði reglulega smákökur og kartöfluflögur við skrif á kennslubók.
Rautt kjöt aðeins einu sinni í viku
Willett leggur áherslu á að fólk þurfi ekki að hætta alfarið að borða dýraafurðir til að bæta heilsuna.
Hann mælir þó með því að meginhluti mataræðisins komi úr jurtaríkinu. Fólk geti borðað einn skammt af mjólkurvörum og einn skammt af fiski, kjúklingi eða öðrum dýraafurðum á dag, en ætti að takmarka neyslu rauðs kjöts við einu sinni í viku.
Willett er enn virkur í starfi þrátt fyrir háan aldur. Hann hjólar í vinnuna og stundar einnig styrktaræfingar.
Þegar hann er spurður hvaða eina ráð hann myndi gefa fólki eftir fjögurra áratuga rannsóknir á mataræði og heilsu er svarið einfalt:
„Borðið fjölbreyttan og hollan mat sem kemur að mestu úr jurtaríkinu og finnið leið til að gera það þannig að þið njótið þess.“