Fókus

Breaking Bad-stjarna látin aðeins 34 ára að aldri

Mynd
Mynd/Getty

Leikarinn RJ Mitte er látinn, 34 ára að aldri, en hann sló í gegn í verðlaunaþáttunum Breaking Bad þar sem hann fór með hlutverk Walter 'Flynn' White Jr. Leikarinn túlkaði hlutverkið út frá sinni eigin reynslu, en bæði hann og persónan sem hann lék glímdu við CP-hreyfihömlum (e. cerebral palsy).

Talsmaður leikarans greindi frá andlitinu og segir í samtali við TMZ: „Það er með djúpri sorg sem við greinum frá sviplegu fráfalli hins ástsæla leikara, mannvinar og ötula baráttumanns fyrir réttindum fatlaðs fólks, RJ Mitte.“

Leikarinn lést í Texas á mánudaginn en TMZ hefur það eftir heimildum að leikarinn hafi fallið fyrir eigin hendi en lögregla hefur andlátið nú til rannsóknar. Hann lætur eftir sig unnustuna Kennedy Suarez en þau trúlofuðu sig á síðasta ári eftir margra ára samband.

Í þessari frétt er fjallað um þunglyndi og sjálfsvíg. Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.