Franz Gunnarsson, gítarleikari í hljómsveitum eins og Ensími og Dr. Spock, hefur reglulega þurft að hugsa aðeins út fyrir kassann á sínum tónlistarferli, ekki síst varðandi kynningarmál. Þegar hann og félagar hans í Quicksand Jesus voru að gefa út plötu á tíunda áratugnum áttu þeir ekki pening í auglýsingar. Lausnin var einföld: fá trukk, setja hljóðkerfi í hann og spila fyrir fólkið sem var nýkomið út af skemmtistöðunum í miðbæ Reykjavíkur.
„Við byrjum að spila og við náum að spila svona eitt og hálft lag áður en að allir lögreglubílar á höfuðborgarsvæðinu eru komnir niður í bæ,“ segir Franz þegar hann rifjar upp þessa sögu.
Bílstjórinn var handtekinn, trukkurinn gerður upptækur og daginn eftir var ónefnd hljómsveit komin í fréttatíma landsins. Sagan endaði meira að segja á forsíðu DV á sínum tíma og síðar fengu þeir sérstaka viðurkenningu á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrir uppátækið.
Þessa sögu og fleiri segir Franz Gunnarsson í nýjasta þættinum af hlaðvarpinu Popparasögum. Hann hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi, meðal annars með Quicksand Jesus, Dr. Spock og Ensími, en einnig sem sólólistamaður, tónleikahaldari og í ýmsum öðrum verkefnum.
Dr. Spock og listin að vera aðeins á undan lögreglunni
Þegar Dr. Spock var að gefa út sína fyrstu plötu var trukknum aftur ræst. Í þetta skiptið var ferðinni heitið í framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu. Hljómsveitin mætti í frímínútur, spilaði þrjú lög og var farin áður en skólastjórnendur eða lögregla náðu almennilega að átta sig á hvað var að gerast. „Þannig að þeir voru alltaf einu, tveimur skrefum á eftir okkur. Við vissum ekkert hvar við myndum enda næst,“ rifjar Franz upp.
Þetta varð hluti af því sem einkenndi Dr. Spock. Hljómsveitin var ekki bara að spila tónlist heldur hafði hún gaman af því að setja hana í alls konar samhengi þar sem fólk átti kannski síst von á henni. Þegar Airwaves kom til sögunnar var trukknum meira að segja lagt niður Laugaveginn með eldgleypum og tónlist fyrir fólkið sem beið í röðum fyrir utan tónleikastaðina.
En það var samt ekki bara markaðssetningin sem gerði Dr. Spock að Dr. Spock. Þegar Dr. Gunni bauð Franz svo að semja með sér lag fyrir Eurovision var viðbragðið nánast eins og þetta væri eðlilegasta mál í heimi. Þeir bjuggust ekki við að komast langt. En Dr. Spock náði alla leið í úrslit, varð vinsælt hjá bæði ömmum og yngra fólki, eins og Franz orðar það, og fékk enn eitt tækifærið til að sýna þjóðinni hvers konar hljómsveit þetta var.
Gúmmíhanskar, pappaspjöld á höfðinu, fjarstýrður bíll og ýmislegt annað flipp fylgdi með. Sumt af hugmyndunum þeirra fékk þó einfalt nei frá stjórnendum keppninnar. „Þetta er, hérna, alþjóð að horfa á þetta. Þið getið ekki gert þetta,“ segir Franz. Þeir fengu samt að hafa gúmmíhanskana.
Svo var það Ensími og tíminn með Steve Albini
Á sama tíma og Dr. Spock var að taka á sig mynd var annað verkefni að verða til í kringum Franz. Árið 1996 fór hann að hitta Jonna og Hrafn, sem voru þá að vinna að hugmyndum eftir að Jet Black Joe var að liðast í sundur.
Franz fór að mæta í bílskúrinn hjá Jonna og fljótlega fóru helgarnar að snúast um að vinna í músík fyrir þetta nýja verkefni. Það var ekki einu sinni planið að stofna hljómsveit en smám saman varð úr þessu Ensími.
Munurinn á Ensími og Dr. Spock var þó fljótur að verða skýr. Í Dr. Spock fékk Franz útrás fyrir flippið, ruglið og tilraunirnar. Ensími var alvarlegra verkefni. Þar fann hann tilfinninguna að þeir væru að skapa eitthvað sem gæti raunverulega skipt máli.
Platan Kafbátamúsík varð til og hljómsveitin fékk fljótt athygli. Svo kom símtal sem átti eftir að verða einn af stærri punktunum á ferlinum. Heimsfrægur upptökumaður, Steve Albini, sem hafði unnið með hljómsveitum eins og Nirvana, Pixies og fleirum, vildi vinna með þeim.
Albini hafði heyrt Kafbátamúsík og bauð þeim fimm daga í stúdíói. Vandamálið var bara að Ensími átti ekki nægilega mikið af nýju efni fyrir upptökurnar. Þeir höfðu tvo eða þrjá mánuði til að koma saman plötu. „Við fengum sjokk af því að við bara, heyrðu ókei, við þurfum að vera tilbúnir með efni hérna eftir hvað, tvo mánuði eða eitthvað, þrjá mánuði og við eigum engin lög,“ segir Franz í hlaðvarpinu. Þeir sögðu samt já.
Það var sérstakt augnablik fyrir Franz þegar Ensími fór í stúdíó með Steve Albini. „Við erum að taka upp með manninum sem tók upp In Utero-plötuna,“ segir Franz. „Ég svona fæ „starstruck moment“ og bara smá panikkast sko. Bara, bara í hvaða aðstöðu er ég hérna?“ Þarna var hann allt í einu kominn inn í stúdíó með manni sem hafði unnið með mörgum af þeim listamönnum sem hann sjálfur hafði hlustað á í gegnum tíðina.“
Albini tók hins vegar eftir því að eitthvað var að trufla Franz og spurði hann hvað væri að plaga hann. Franz útskýrði að honum fyndist þetta svolítið sérstakt, enda væri Albini goðsögn á meðan þeir væru bara einhverjir litlir krakkar frá Íslandi. Þá svaraði Albini með orðunum sem Franz gleymir ekki: „Hvaða djöfulsins kjaftæði er þetta í þér?“ Og svo bætti hann við: „Þú ert ekkert minna merkilegur eða meira merkilegur heldur en Kurt Cobain. Þið eruð að gera nákvæmlega sama hlutinn,“ rifjar Franz upp.
Tvö bönd, sömu menn
Um tíma var þetta svolítið furðulegt fyrirkomulag fyrir Franz að vera í bæði Dr. Spock og Ensími og fleiri meðlimir skiptust á milli hljómsveitanna. „Þetta var svona dálítið flókið á tímabili.“ Í grunninn voru þetta að miklu leyti sömu menn: Arnar á trommum, Guðni á bassa, Þorbjörn á hljómborði og Franz á gítar. Svo kom Hrafn í framlínu Ensíma en Finni og Óttarr í Dr. Spock.
Þeir spiluðu meira að segja saman sem Ensími og Dr. Spock um tíma, einfaldlega vegna þess að það var þægilegt. En á endanum varð ljóst að hljómsveitirnar þyrftu að fá sitt eigið líf. „Á meðan í Dr. Spock þá er maður að fá útrás fyrir einmitt þessu flippi og alls konar, þessum pælingum og þessum þyngslum og hérna að þá í Ensími að þá er það meira alvörugefið.“
Þegar áfengið varð hluti af tónlistinni
Ein stærsta áskorunin á ferlinum var baráttan við áfengið. Franz kom ungur inn í tónlistarbransann þar sem bjór og áfengi voru einfaldlega hluti af umhverfinu. Þegar hann spilaði fékk hann oft frían bjór eða inneign á barnum. Á tónlistarhátíðum fylgdu bjórmiðar og á tónleikaferðum var áfengi víða til staðar.
Smám saman varð þetta hluti af því hvernig hann gat starfað. „Lífsstandardinn var rosa mikill að ég gat ekki samið músík, tekið hana upp eða flutt hana án þess að vera undir áhrifum,“ segir Franz.
Þetta var hans raunveruleiki allt fram til ársins 2015. Utan frá leit þó allt út fyrir að vera í lagi. Franz lýsir því hvernig hann hafi sett upp mikinn front og lifað í eins konar leikriti. Fólk í kringum hann vissi ekki endilega hvað var í gangi bak við tjöldin. Á endanum fór hann í meðferð.
Franz hafði lengi tengt áfengið og vímuefnin við sköpunina. Þegar hann hætti að nota þetta hélt hann um tíma að tónlistarferillinn væri einfaldlega búinn. Hann gæti ekki samið lengur. Neistinn væri farinn. En eftir meðferðina ákvað hann að prófa.
Hann fór inn í stúdíó á morgnana, hellti upp á kaffi og byrjaði að gera tónlist. Smám saman kom neistinn aftur. Hann gaf síðar út sólóplötuna Kaflaskil undir nafninu Paunkholm, sem varð að ákveðnu uppgjöri við þetta tímabil. „Þar í raun og veru finn ég aftur þennan neista.“
„Núna er ég bara 100 prósent í því“
Franz segir að síðan þá hafi ástin á tónlistinni vaxið og vaxið. Maðurinn sem eitt sinn þurfti áfengi til að semja, taka upp og flytja tónlist er enn að gera nákvæmlega það sem hann hefur alltaf gert. Hann er enn að spila með Ensími sem fagnar 30 ára afmæli á þessu ári. Dr. Spock er enn á lífi og báðar hljómsveitirnar spiluðu um síðustu helgi á sitt hvorum viðburðinum. Hann er enn að semja, enn að skipuleggja tónleika og enn með fullt af hugmyndum í símanum og tölvunni.
Franz rifjar upp upphafsárin, þegar hann fór í Músíktilraunir með Matta Matt, þegar Gunnar Bjarni bauð honum að vera bassaleikari með sér rétt áður en Jet Black Joe varð til, þungarokkið með In Memoriam, tilurð Quicksand Jesus, Dr. Spock og Ensími, viðburðahaldið, framtíðina og fleira. Allt þetta í tveimur þáttum af Popparasögum.