Fókus

Stjarnan úr Mean Girls tók lífsstílinn í gegn - Sýnir þyngdartapið

Mynd

Stjarnan úr Mean Girls, Daniel Franzese, hefur opnað sig um hvernig honum tókst að léttast um 65 kg.

„Ekkert áfengi, enginn sykur, æfingar fjórum sinnum í viku (eða oftar), macros mataræði,“ sagði Franzese, sem er 48 ára, og sagði að þessar fjórar lífsstílsbreytingar hefðu hjálpað honum að ná nýja útlitinu eftir þriggja ára vinnu.

Mynd

Aðdáendur hrósuðu honum í athugasemdum, einn sagði hann innbæástur og annar: „Myndarlegur hvernig sem þú lítur út, en ég er svo ánægð að þér líður vel með þig og þessa stórkostlegu umbreytingu!“

„Báðir líkamarnir eru fallegir, en þú hefur tekið svo miklum framförum, til hamingju,“ sagði sá þriðji.

Leikarinn bætti við um æfingarútínuna sína: „Satt best að segja líður mér nokkuð vel með þessar framfaramyndir. Að gera mikið af ketilbjöllum og njóta þess, en ég á enn verk fyrir höndum.“

Mynd

Leikarinn er þekktastur fyrir að leika Damian Leigh, einn af nánustu vinum Cady Heron, í unglingagamanmyndinni Mean Girls frá árinu 2004 , þar sem hann lék á móti Lindsay Lohan, Rachel McAdams og Amanda Seyfried .