Fókus

„Prompt er ekki sköpun“ – Þormóður segir gervigreind geta drepið sköpunarkraftinn

Mynd
Þormóður og Stefán Atli

Tónlistarframleiðandinn Þormóður Eiríksson segir að gervigreind eigi eftir að gjörbreyta tónlistarbransanum og telur líklegt að margir tónlistarframleiðendur verði óþarfir eftir því sem tækninni fleygir fram. Sjálfur hefur hann þó lítið heillast af gervigreindartónlist og segir að notkun hennar í stúdíóinu geti beinlínis dregið úr sköpunarkrafti.

Þormóður er gestur í nýjum þætti Gervigreindarklúbbsins með Stefáni Atla. Hann hefur komið að fjölda þekktra íslenskra laga og unnið með listamönnum á borð við Herra Hnetusmjör, JóaPé og Króla, Aron Can, Emmsjé Gauta og fleiri. Í þættinum er farið yfir feril hans, hvernig stórsmellir verða til og hvernig gervigreind gæti breytt því hvernig tónlist verður samin og framleidd.

„Þetta drepur sköpunargáfuna mína“

Þormóður segist hafa prófað tónlistargervigreind á borð við Suno en upplifun hans af henni hafi hingað til verið ákveðin flatneskja. Honum finnist vanta þá mannlegu áferð og tengingu sem hann leitar að þegar hann vinnur að tónlist.

Hann segist jafnframt hafa tekið eftir því að þegar gervigreind sé tekin inn í skapandi vinnu verði of auðvelt að fá endalausa valmöguleika samstundis.

„Ef við tökum gervigreind inn í sessionið, þá hættum við að vera skapandi.“

Þormóður segir sköpunarorkuna vera gríðarlega verðmæta í sínu starfi og að þetta sé ein helsta ástæða þess að hann hafi hingað til haldið sig frá því að nota gervigreind mikið við tónlistarsköpun.

Heyrði eigið lag í Suno-efni

Eitt athyglisverðasta augnablik þáttarins kemur þegar Þormóður lýsir því að hann hafi sjálfur heyrt lag sem hann hafði komið að birtast í efni sem búið hafði verið til með Suno.

Að hans sögn var lagið í raun það sama en með nýjum texta. Reynslan styrkti þá skoðun hans að núverandi gervigreindarkerfi séu fremur að vinna úr fyrirliggjandi tónlist en að skapa á sama hátt og manneskja gerir.

„Prompt er ekki sköpun,“ segir Þormóður og lýsir sköpun sem ferli þar sem listamaður þarf að glíma við vandamál, taka ákvarðanir, gera mistök og vinna sig í gegnum hugmyndina.

Telur AI geta „tekið marga pródúsera niður“

Þrátt fyrir gagnrýnina telur Þormóður að gervigreindin muni hafa mikil áhrif á tónlistarbransann.

Þegar hann er spurður hvað ungt fólk þurfi að læra ætli það sér að starfa við tónlist næstu tíu árin er svarið einfalt: hljóðfæri.

Hann telur að hæfnin til að spila, skapa og tjá sig í gegnum hljóðfæri verði jafnvel verðmætari þegar vélar geta framleitt sannfærandi tónlist á örskömmum tíma.

„Ég held að gervigreindin sé alveg að fara að taka marga pródúsera niður,“ segir Þormóður og telur að þeir sem hafi ekki þróað með sér dýpri tónlistarlega færni geti átt erfiðara uppdráttar.

Ekki á móti gervigreind – heldur hvernig hún er notuð

Þormóður leggur þó áherslu á að hann sé ekki alfarið á móti gervigreind.

Hann segist meðal annars spenntur fyrir því að sjá ný hljóðfæri, syntha og önnur skapandi verkfæri sem nýta gervigreind til að gera hluti sem áður voru ekki mögulegir.

Fyrir honum snýst spurningin því síður um hvort gervigreind eigi heima í tónlist og frekar um hvort tæknin gefi listamanninum raunverulega meiri stjórn og nýja möguleika til sköpunar.

Í þættinum ræða Stefán Atli og Þormóður einnig höfundarrétt, hvort rétt sé að þjálfa gervigreind á tónlist án samþykkis listamanna, framtíð ungra tónlistarmanna, samstarfið við Herra Hnetusmjör og Saint Pete og hvernig íslenski tónlistarbransinn gæti þróast næstu ár.

Þátturinn með Þormóði Eiríkssyni er aðgengilegur í Gervigreindarklúbbnum á helstu hlaðvarpsveitum.