Leikkonan Megan Fox bregst ekki aðdáendum sínum, á föstudag opnaði hún sinn eigin áskriftarvef á Subs.com og lofaði „myndböndum, myndum og færslum sem þú finnur hvergi annars staðar“, augnablikum streymt beint úr síma hennar, beinum aðgangi að „skilaboðum og upplifun á persónulegri hlið“ hennar og fleiru.
„Konum hefur verið sagt áratugum saman að sýnileiki sé vald á meðan einhver annar á
vettvanginn, áhorfendurna eða ímyndina,“ sagði Fox, sem er fertug í fréttatilkynningu. „Ég hef áhuga á því hvað gerist þegar konur eiga allt þrennt.“
Á opinberum kynningarmyndum fyrir klæðist Fox hvítum topp með áletruninni „smart brunette“, ásamt rauðum bikiníbuxum og glæsilegu hálsmeni.
Heimildarmaður sagði Page Six að meganfox.world hefði sett netið á hliðina þegar hann opnaði og vefurinn hafi ekki haft undan traffíkinni.
Fox er jafnframt meðeigandi að Subs.com, sem Tim Stokely, einn af hugmyndasmiðunum á bak við OnlyFans, stofnaði.
„Megan skilur þessa breytingu frá sjónarhorni sem mjög fáir geta,“ útskýrði Stokely í eigin yfirlýsingu. „Hún varð heimsfræg áður en hæfileikafólk hafði verkfærin til að ná tökum á áhorfendum sínum eða stjórna dreifingu þeirra. Megan er ekki bara að opna síðu á Subs. Hún situr við borðið og hjálpar okkur að byggja upp vettvanginn.“
Auk kynningarmyndanna tilkynnti Fox fréttirnar sjálf með því að birta nokkrar nýjar myndir og myndbönd á Instagram-síðu sinni. „Neo-noir kynferðisleg spennutryllir,“ skrifaði hún í myndatexta og hvatti aðdáendur til að „skoða sögur hennar“ til að finna opinbera tengilinn á síðu hennar.