Fókus

Guðrún Ólöf missti fótinn vegna krabbameins: „Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann, ekki hunsa það“

Mynd
Guðrún Ólöf Gunnarsdóttir.

Guðrún Ólöf Gunnarsdóttir greindist með æxli í hnénu, en síðar komu í ljós meinvörp um allan fót og þurfti að fjarlægja hann fyrir ofan hné. Hún hvetur fólk til að hlusta á líkamann. 

„Þetta byrjaði þannig að ég var með slitinn liðþófa og fór í aðgerð á vinstri fæti og visis að ég þurfti að fara á hægri líka,“ segir Guðrún Ólöf. Læknirinn vildi að hún kæmi aftur eftir ár, en hún vildi að það yrði fyrr. Guðrún Ólöf greindist með æxli á stærð við golfkúlu í hnénu í aðdraganda aðgerðar. Í eftirskoðun í september sáust engin ummerki um meinvörp, en um áramótin 2020-2021 fann Guðrún Ólöf að eitthvað var ekki eins og það átti að vera. „Þá er ég farin að finna fyrir verkjum í baki, mjóbaki, mjöðm, nára og tám.“ 

Guðrún Ólöf fór til læknis í júní og fékk þá þær fréttir að krabbameinið væri búið að dreifa sér um allan fótinn. „Ég hlustaði ekki á líkamann og fer aðeins of seint. Þá þurfti ég að fara í aflimun,“ segir hún. Fóturinn var tekinn af fyrir ofan hné.  

Finnur eitthvað jákvætt á hverjum einasta degi 

Eftir aðgerðina tileinkaði hún sér að taka einn dag í einu og reyndi að hafa eitthvað fyrir stafni á hverjum degi. „Ég einhvern veginn tileinkaði mér það, eftir verstu veikindin, eftir aðgerð. Ég tók bara einn dag í einu og það hefur hjálpað mér heilmikið. Að finna alltaf eitthvað jákvætt.“ Hún vill einnig hvetja fólk til að hlusta á líkamann. „Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann, ekki hunsa það. Alveg sama hversu lítið eða mikið, hlustaðu á líkamann.“