Fókus

Afhjúpar ótrúlega lága upphæð sem hann þénaði í NSYNC: „Vann frítt“

Mynd
Lance Bass

Lance Bass var meðlimur einnar þekktustu og vinsælustu strákahljómsveitar allra tíma, NSYNC, en það er ekki þar með sagt að hann hafi þénað vel. 

Í þættinum The Zach Sang Show á fimmtudag segir Bass að hann hafi aðeins fengið 35 dollara í dagpeninga og að „fyrsti reikningurinn okkar var 10.000 dollarar,“ og benti á að þessi ótrúlega lága upphæð kæmi eftir „ár af plötum sem náðu fyrsta sæti vinsældalista“ og „uppseldum tónleikaferðalögum“.

„Ég veit ekki hversu margar milljónir ég græddi á vörum því varningssalan var klikkuð,“ sagði hann.

Bass hélt því fram að þegar hann og hljómsveitarfélagar hans, Justin Timberlake, JC Chasez, Chris Kirkpatrick og Joey Fatone, fengu „loksins“ ávísun upp á 10.000 dollara, hafi þeim verið sagt: „Þið ættuð að vera þakklátir fyrir það. Þið hafið unnið frítt í tvö, þrjú ár núna.“

Mynd

Hvað varðar núverandi stöðu sína, þá fullyrti Bass, sem nú er 47 ára, að þótt hann fái „örugglega“ höfundaréttargreiðslur, „þá sé það ekki mikið“.

„Fólk heldur að ég sé svo ógeðslega ríkur af NSYNC, en nei,“ hélt hann fram. „Alls ekki.“

Bass segir að hann hafi verið í góðum málum eftir að hljómsveitin fór í pásu árið 2002 og að hann sé „mjög stoltur af öllu sem hann gerði eftir það“, en ítrekar: 

„Ég græddi varla neitt með NSYNC,“ sagði hann um hljómsveitina sem var stofnuð árið 1995.

Bass hélt því enn fremur fram að þótt hann og hljómsveitarfélagar hans hefðu ekki grætt mikið á hæfileikum sínum, þá hefðu útgáfufyrirtækið og Lou Pearlman, hinn alræmdi látni tónlistarstjóri þeirra, „grætt gríðarlega mikið“. Pearlman, sem var fangelsaður árið 2008 eftir að hafa verið sakfelldur fyrir peningaþvætti, gjaldþrotasvik og samsæri, lést í fangelsi árið 2016.

Mynd

Þegar Bass var spurður hvort hann væri fullur gremju vegna lágra tekna sinna svaraði hann ekki lengur en viðurkenndi að honum fyndist hann hafa verið svikinn.

„Allir sögðu stöðugt: „Þú ert ungur, þú ert ungur,“ sagði hann. „Jæja, hverjum er ekki sama þó þú sért ungur? Þú þarft samt að sjá fyrir þér og undirbúa þig fyrir framtíðina því í flestum tilfellum er það takmarkaður tími til að geta gert eitthvað slíkt og enginn hefur undirbúið okkur fyrir lífið eftir það.“

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Bass heldur því fram að hann hafi verið  hlunnfarinn á starfstíma sínum í hinni heimsfrægu hljómsveit. Árið 2023 kallaði Bass fólk sem hélt þá ríka vegna velgengni hljómsveitarinnar „það versta“.

„Við vorum frægir en ekki ríkir,“ játaði hann í þættinum The Jess Cagle Show.

„Ég græddi miklu meiri peninga eftir NSYNC heldur en ég gerði á meðan NSYNC stóð yfir.“

Samt sem áður, sagði hann, „augljóslega“ breytti það lífi hans og stefnu að vera hluti af strákahljómsveitinni á hátindi frægðar sinnar. „Við höfðum frábært stuðningskerfi. Ég er ánægður að ég var í hljómsveit, því ég átti fjóra bræður mína sem héldu manni á jörðinni.“