Leikarinn og leikstjórinn Ben Affleck hefur nú loks svarað spurningunni á allra vörum um nektarsenu í kvikmyndinni Gone Girl. Þar mátti sjá persónuna sem Affleck lék kviknakta í sturtunni. Veltu margir fyrir sér hvort þar hefði mátt sjá kynfæri leikarans eða gervilim.
„Ég var ekki með gervilim,“ sagði leikarinn í samtali við Variety. „Ég hef bara verið með gervilim í einni mynd, Hollywoodland, og þá var það nef.“
Ben hefur áður gantast með umrædda nektarsenu. Þegar hann hlaut verðlaun fyrir leik sinn í téðri mynd árið 2014 lýsti hann því fyrir áhorfendum að leikstjóri myndarinnar, David Fincher, hefði heitið honum því að myndavélin myndi ekki afhjúpa of mikið í atriðinu.
„David fullvissaði mig – því traust er nauðsynlegt milli leikstjóra og leikara – „Sko, ef við beinum myndavélinni niður þá förum við ekki nógu langt til að sjá nokkuð.“
Affleck beindi máli sínu svo beint að leikstjóranum: „Ég vil þakka þér fyrir að hafa tökustaðinn kaldan, því ef þú hefur bara eitt færi á að sýna Bandaríkjunum tólið á þér þá viltu gera það í kulda.“
Þáverandi eiginkona hans og barnsmóðir, Jennifer Garner, hafði eins gert góðlátlegt grín að atriðinu. Hún sagði í þætti Ellen DeGeneres: „Það eina sem ég hef að segja er, verði ykkur að góðu. Ég lít á mig sem gjafmilda manneskju og vildi gefa til baka. Þið hafið gefið mér svo mikið, ég vildi gefa eitthvað til baka“