Bandaríski leikarinn Keegan Allen, sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Pretty Little Liars, varð fyrir vopnuðu ráni í vesturhluta Hollywood í gærkvöldi. Tveir grímuklæddir menn réðust á leikarann, börðu hann í höfuðið og hótuðu honum lífláti áður en þeir höfðu á brott með úr hans.
Allen, sem er 37 ára og lék Toby í þáttunum vinsælu, var staddur á bílastæði fyrir utan lúxusmatvöruverslunina Laurel Supply þegar mennirnir réðust að honum. Öryggismyndavélar náðu árásinni á myndband.
Á upptökunni má sjá tvo grímuklædda menn nálgast leikarann þar sem hann virðist vera að koma vörum fyrir í aftursæti pallbíls síns. Annar mannanna slær Allen ítrekað í höfuðið með skotvopni á meðan hinn ógnar honum með hnífi.
Árásarmennirnir höfðu á brott með úr leikarans en létu önnur verðmæti hans, þar á meðal armband og hring, ósnert.
Skömmu eftir árásina birti Allen myndband á Instagram þar sem hann lýsti því sem gerst hafði. Hann var þá blóðugur eftir átökin.
„Þessir tveir náungar slógu mig í höfuðið, beindu að mér byssu og ógnuðu mér með hnífi áður en þeir hlupu á brott,“ sagði Allen.
„Þeir voru með grímur og tóku úrið mitt. Þeir tóku úrið mitt. Fjandinn hafi það.“
Leikarinn greindi síðar frá því í athugasemdum á Instagram að hann hefði leitað á sjúkrahús eftir árásina. Hann taldi sig hafa fengið heilahristing en fullvissaði fylgjendur sína um að hann myndi jafna sig.
Allen lét einnig í ljós mikla óánægju með öryggisástandið í hverfinu, sem kallast West Hollywood, og sagði árásina sýna að hverfið væri ekki lengur öruggt.
Hann beindi gagnrýni að Karen Bass, borgarstjóra Los Angeles, og Gavin Newsom, ríkisstjóra Kaliforníu.
„Ég mun segja meira frá þessu fljótlega. Vonandi geta allar þessar Flock-myndavélar, sem Karen Bass, Gavin Newsom og allir hinir telja að muni koma í veg fyrir glæpi, fundið þessa stórhættulegu glæpamenn. Guð blessi,“ skrifaði Allen.