Karitas Nína Viðarsdóttir hefur sent frá sér bókina „Neyðarástand: Dagbók móður úr Grindavík“ en um er að ræða hljóðbók sem Storytel gefur út.
Í bókinni lýsir reynslu sinni og fjölskyldu sinnar af jarðhræringunum í Grindavík í kringum rýmingu bæjarins föstudaginn 10. nóvember árið 2023.
Í bókinni greinir Karitas frá krefjandi aðstæðum hennar og fjölskyldu hennar og annarra Grindvíkinga í tengslum við þessa atburði. Hún fjallar einnig um sárar og erfiðar minningar úr æsku.
Karitas er í viðtali við Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur í þættinum „Segðu mér“, á Rás 1. Hún starfaði sem grunnskólakennari í Grindavík og lýsir þessum örlagaríka föstudegi í bænum: „Ég fór í vinnuna þann dag og fór upp í grunnskóla að kenna þó að í rauninni, undir eðlilegum kringumstæðum, hefði ég ekki átt að fara því ég var ekkert búin að sofa. Þessir skjálftar voru búnir að vera linnulausir alla vikuna og allar nætur. Ég var dauðþreytt.“
Ókennsluhæft var þennan morgun vegna jarðskjálfta og vörðu börnin skóladeginum að mestu utandyra. Ástandið hríðversnaði á nokkrum klukkustundum og svo fór að fjölskyldan tók föggur sínar saman á örstuttum tíma og yfirgaf bæinn í skelfingu.
Í hönd fóru erfiður tími en fjölskyldan bjó mánuðum saman í sumarbústað.
Afi braut gegn henni
Karitas rifjar einnig upp sárar minningar frá æskuárum sínum, en afi hennar braut gegn henni kynferðislega. Samverustundum með honum fylgdi stigvaxandi kynferðisleg áreitni sem byrjaði með grófum bröndurum:
„Hann athugaði hvort ég myndi hlæja, sýndi mér dónalegt tímarit og athugaði hvað ég myndi gera. Ég var í rauninni ekkert að kippa mér upp við eitthvað dónablað því við krakkarnir vorum hvort eð er alltaf að reyna að stela þeim og gera grín að þeim. Svo kannski sátum við í stofunni við litla sófaborðið og ég var að lita og horfa á teiknimyndir. Afi sat í stólnum sínum og þá kom kannski augnablik þar sem hann svissaði yfir á mynd, svona grófa mynd, og ég kíki upp og það eru læti í þessu og allt það og ég sé alltaf, þetta er svo skýr minning, ég sé út undan mér hvar hann er að fylgjast með mér, athuga hvað ég myndi gera.“
Þetta ofbeldi fór vaxandi uns Karitas hætti að heimsækja afa sinn. En hún áttaði sig ekki á því fyrr en mörgum seinna að hún hafði verið beitt ofbeldi. Fræðsla í skólanum opnaði augu hennar fyrir því.
Sjá nánar hér.