„Ég var í rauninni bara mjög heppin,“ segir Hrafnhildur sem greindist með sortuæxli.
„Ég fók eftir fæðingarbletti á hendinni og jú ég er með mikið af fæðingarblettum en þessi var svolítið öðruvísi. Ég var búin að taka eftir breytingum á kannski tveggja þriggja mánuði fresti en var svo sem ekki að kippa mér mikið upp. Átti tíma pantaðan hjá húðlækni, fer svo til útlanda, til Spánar, í æfingaferð og er mikið í sól. Þegar ég kem heim úr henni tek ég eftir stöðugum breytingum á blettinum, bara á vikufresti var hann upphleyptur, litlaus, svo allt í einu litamikill, breytti um lögun...“
Þegar Hrafnhildi byrjaði að klæja í blettinn fór hún að hafa áhyggjur og hringdi upp á Húðlæknastöð og fékk að flýta tímanum hjá húðlækninum. Hún fékk síðar símtal þess efnis að fundist hefði sortuæxli í blettinum og þurfti hún að fara í uppskurð til að kanna hvort meinið hefði dreift sér. Bletturinn var tekinn í skurðaðgerð og kom í ljós að meinið var staðbundið.
„Bestu fréttir sem hægt var að fá,“ segir Hrafnhildur en læknirinn hennar benti henni á að önnur staða hefði komið upp ef ekkert hefði verið að gert.
„Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal,“ sagði læknirinn í síma við hana.
Saga Hrafnhildar er til vitnis um mikilvægi þess að leita til læknis finni maður til einkenna. „Ef maður finnur eða sér eitthvað, ekki hika og fara og láta athuga,“ segir hún.
Reynslusaga hennar birtist í ávekniátaki Krabbameinsfélagsins, Bleiku slaufunni. Sjá nánar í spilaranum hér að neðan.