Eyjan

Dóra Sif Tynes: Bókun 35 gengur út á að Íslendingar séu jafnsettir öðrum borgurum EES

Mynd

Það er alveg ljóst að bókun 35 tekur aðeins til jafnsettra laga, þ.e. einungis Evrópureglur sem Alþingi hefur samþykkt og innleitt ganga öðrum íslenskum lögum framar þegar þau skarast. Það er ekki verið að tala um Evrópureglur sem Alþingi hefur ekki innleitt. Nú er komið í ljós að íslenskir dómstólar líta svo á að forgangur evrópskra reglna sem búið er að innleiða hafi ekki lagastoð hér á landi vegna þess að Alþingi hefur ekki samþykkt forgangsregluna. Dópra Sif Tynes, lögmaður og sérfræðingur í ESB- og EES-rétti, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Núna í vikunni var mælt fyrir bókun 35, sem sagt þingmáli ríkisstjórnarinnar, frumvarpi held ég muni rétt, um að innleiða og lögfesta hér bókun 35. Það er búið að vera nokkur forsaga að þessu. Hverjar eru rætur bókunar 35 við þennan EES-samning?

„Ræturnar eru náttúrlega í samningaviðræðunum um samninginn sjálfan á sínum tíma og það sem er kannski ágætt að hafa í huga er að auðvitað er markmið samningsins að búa til þetta einsleita efnahagssvæði, þ.e.a.s. efnahagssvæði þar sem gilda sömu reglur og sömu samkeppnisskilyrði og í því skyni þurfti að leysa úr því álitaefni að Evrópurétturinn, á þessum tíma er búið að fastmóta reglur um bein réttaráhrif annars vegar og svo forgangsáhrif réttarins hins vegar.

Bein réttaráhrif eru þá þegar fólk getur byggt beint á sem sagt þá tilskipun eða reglugerð fyrir dómi í ESB-ríki án þess að hún hafi verið innleidd ef textinn er nægilega skýr og óskilyrtur. Forgangsáhrifin er þegar að innlend löggjöf víkur fyrir reglu Evrópuréttarins og það þurfti að finna sem sagt lausn til þess að ná fram sömu áhrifum innan EES-svæðisins og þá hjá EFTA-ríkjunum.

Með því er ekki verið að taka upp þessar reglur Evrópuréttarins enda voru menn meðvitaðir um það að þetta væri samningur sem gengi ekki eins langt eins og í ESB og að það væri stjórnskipulegt álitaefni hjá EFTA-ríkjunum og þetta er leyst með því að beinu réttaráhrifin felast í raun og veru í því að samningurinn felur í sér þessa ríku skyldu til þess að taka upp löggjöf og innleiða.

Þá kemur í staðinn fyrir bein réttaráhrif ríkari skylda til þess að innleiða með réttum hætti og á réttum tíma. Forgangsáhrifin voru svo hins vegar leyst með þessari bókun 35 og hún segir, eins og kannski fólk þekkir núna, að ef innleiddar reglur, innleiddar EES-reglur og önnur innlend löggjöf stangist á skuli þessar innleiddu EES-reglur hafa forgang.

Þannig að það er algjörlega ljóst að reglan eða þessi forgangsregla á bara við um jafnsett lög, þ.e.a.s. lög sem hafa verið sett af Alþingi. Þá annars vegar til þess að innleiða einhverja EES-skuldbindingu eða einhverja aðra löggjöf. Og það er líka gott að hafa í huga að í aðfaraorðum þessa eina ákvæðis bókunarinnar þá er lögð áhersla á það að í þessari bókun felist ekki krafa um framsal á löggjafarvaldi heldur sé hverju ríki látið það eftir að innleiða þessa reglu eftir málsmeðferðum sem að gilda.

Nú þegar samningurinn er gerður, ég held að það sé líka svolítið gagnlegt að hafa í huga að þá er tiltölulega stutt frá því að Hæstiréttur kveður upp hina svokölluðu aðskilnaðardóma, sem koma fram á árunum '89 og '90 þar sem Hæstiréttur segir: Heyrðu, réttarfarsleiðin okkar, að fela sama aðila dómsvald og framkvæmdarvald, stenst ekki skuldbindingar okkar samkvæmt Mannréttindasáttmála Evrópu og þess vegna ber að víkja þeim til hliðar.

Og þetta gerir Hæstiréttur á grunni svona norrænnar skýringarreglu sem ég hef ekki fundið nógu gott íslenskt heiti yfir en á norsku heitir hún presumsjonsprinsippet, og það er sem sagt í rauninni regla sem segir að maður gangi út frá því að löggjafinn vilji virða þjóðréttarlegar skuldbindingar. Þannig að maður reynir þá að beita löggjöf í samræmi við þjóðréttarlegar skuldbindingar. Og ég fæ ekki betur séð bæði af greinargerð með lögunum, þar sem að EES-samningurinn er lögfestur og öðrum lögskýringargögnum, en að menn hafi haft þetta í huga og talið þess vegna að það væri nægjanlegt að mæla fyrir um skýringarreglu eins og var gert í þessu tilfelli.

Í 3. grein EES-laganna erum við með þessa skýringarreglu sem að segir að skýra skuli lög og reglur eftir því sem við á til samræmis við EES-skuldbindingar. Og, þannig að svo forsagan er að mínu viti þessi að menn héldu sem sagt að þessi norræna lögskýringarregla væri ráðandi. Það segir líka í greinargerðinni að að öllu jöfnu væru EES-reglur sérlög.

Þannig að það væri hægt að beita svokallaðri lex specialis reglu, sem segir að sérlög gangi framar almennum lögum. Og það gerði Hæstiréttur til dæmis 2002 í máli Harðar Einarssonar, þá kvað Hæstiréttur á um að 14. grein EES-samningsins um frjálst flæði vara væri sérregla gagnvart virðisaukaskattslögum. Þannig að þetta er í raun og veru bakgrunnurinn. Síðan breytist framkvæmd Hæstaréttar.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

 

 

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.