Sussex-hertogahjónin Harry prins og Meghan Markle ætla ekki að biðja Vilhjálms, bróður Harry, og eiginkonu hans; Katrínu Middleton, afsökunar á viðtali þeirra við Oprah Winfrey árið 2021, þrátt fyrir sögusagnir sem fullyrða annað.
„Þetta er algjört rugl,“ sagði blaðamaðurinn Tom Sykes, við Page Six á miðvikudag. Sykes, sem sérhæft hefur sig í fréttum af konungsfjölskyldunni og skrifaði meðal annars bókina The Dukes sagði enn fremur: „Harry hefur alltaf sagt að hann muni aldrei biðjast afsökunar á neinu.“
Sykes segir hjónin ekki sjá eftir viðtalinu við Oprah, sem vakti gríðarlega athygli á sínum tíma.
Kinsey Schofield, fréttaskýrandi hjá Royal Times, sagði einnig að sögusagnir um afsökunarbeiðni standist ekki. „Harry prins og Meghan standa enn föst á sínu,“ sagði kynnir hlaðvarpsins Kinsey Schofield Unfiltered við Page Six á miðvikudag. „Mínar eigin heimildir hafa sagt mér að þessi saga sé alls ekki sönn. Ef eitthvað er, þá hefur mynstrið haldist. Ég myndi taka fullyrðingum um að þau sjái nú eftir Oprah viðtalinu og séu að búa sig undir að biðjast afsökunar með miklum efasemdum.“
Á þriðjudag greindi Daily Express frá því að Harry og Markle ætluðu að „lýsa eftirsjá sinni“ gagnvart meðlimum konungsfjölskyldunnar vegna viðtalsins við Oprah. „Harry og Meghan hafa alltaf vitað, allt frá því að þau ákváðu að snúa aftur til Bretlands, að þau þyrftu að láta í minni pokann,“ sagði heimildarmaðurinn við fjölmiðilinn. „Það sem þau sáu mest eftir varðandi það að yfirgefa konungsfjölskylduna og flytja til Bandaríkjanna var viðtalið við Oprah, og Meghan veit að hennar stærstu mistök voru þau að halda því fram að einhver úr konungsfjölskyldunni hefði rætt um húðlit Archie,“ hélt heimildarmaðurinn áfram. Í greininni kom fram að Harry hefði verið „reiður fjölskyldu sinni á þeim tíma“ og að Markle hefði stutt sjónarmið hans.
„Þau gera sér nú grein fyrir því hversu óvægið þetta var. Þau vita bæði að þau eru skapheit og viðurkenna að þau gengu of langt,“ sagði heimildarmaður Daily Express og bætti við að langtímaáætlanirHarry og Markle um að snúa aftur til Bretlands fælu í sér að sættast við Vilhjálm og Katrínu. „Þau vilja einbeita sér að framtíðinni og vonast til þess að hún feli í sér sátt á einhverjum tímapunkti,“ sagði heimildarmaðurinn. „Þau vilja gjarnan setjast niður og ræða það sem þau sögðu, og Meghan mun biðjast afsökunar.“
Í alræmda viðtalinu við Winfrey árið 2021 héldu Markle og Harry ekki aftur af sér þegar þeir sögðu frá fjölskylduleyndarmálum í tveggja tíma þætti á CBS. Markle, sem var ólétt af dótturinni Lilibet, sem nú er fimm ára, þegar viðtalið fór fram, hélt því fram að meðlimur konungsfjölskyldunnar hefði átt í „nokkrum“ samræðum þar sem hann lýsti áhyggjum af húðlit sonar þeirra Archie fyrir fæðingu hans. Hún hélt því einnig fram að henni hefði verið sagt að Archie, sem nú er sjö ára, myndi ekki bera konunglegan titil og ætti ekki rétt á öryggisgæslu. „Ég mun aldrei segja frá því samtali, en það var óþægilegt á þeim tíma; ég var dálítið sleginn,“ sagði Harry án þess að fara nánar út í deilurnar.
Í viðtalinu greindi Markle frá því að hún hefði glímt við sjálfsvígshugsanir eftir að hún gekk í konungsfjölskylduna. Hún hélt því einnig fram að það hefði verið Katrín sem fékk hana til að gráta í undirbúningi brúðkaupsins, en ekki öfugt eins og upphaflega var haldið fram.
Árið 2020 ákváðu Harry og Markle að láta af konunglegum skyldum sínum og setjast að í Montecito í Kaliforníu. Flutningurinn og hið umtalaða viðtal ollu deilum við Vilhjálm og Katrínu sem enn standa yfir.
Í ágúst tilkynntu Harry og Markle að þau hygðust flytja aftur til Bretlands eftir sex ár í Kaliforníu. Eftir heimkomuna sendi Karl konungur frá sér sjaldgæfa yfirlýsingu þar sem tekið var fram að yngri sonur hans og tengdadóttir væru áfram einkaaðilar og myndu ekki taka að sér neinar opinberar konunglegar skyldur. Síðan þá hafa Markle, 45 ára, og Harry, 42 ára, haldið sig til hlés þótt þau hafi sést í nokkrum óformlegum ferðum um Cotswolds-svæðið, þar sem þau eru sögð búa um þessar mundir. Þótt virðist sem Karl sé smám saman að taka aftur upp samskipti við Harry og Markle ríkir ósættið enn við Vilhjálm og Katrínu.