Eins og kunnugt er var tilkynnt í morgun að ljóðskáldið Anne Carson hefði hlotið nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Hún er frá Kanada en hefur undanfarin ár búið hluta af árinu á Íslandi og hefur verið íslenskur ríkisborgari frá árinu 2022. Verðlaunaveitingin hefur því vakið þeim mun meiri athygli hér á landi en á samfélagsmiðlum eru misjafnar skoðanir á því hversu mikill Íslendingur Carson geti talist vera og hvort þá megi telja verðlaunin með nóbelsverðlaunum til handa Íslendingum.
Egill Helgason sjónvarpsmaður og leiðandi rödd í umræðum um íslenskar bókmenntir er bersýnilega ánægður með nýja nóbelsverðlaunahafann:
„Vá - þetta eru tíðindi. Anne Carson er íslenskur ríkisborgari. Býr í Vesturbænum.“
Felix Bergsyni rithöfundi, leikara, útvarpsmanni og íbúa í Vesturbænum virðist ekki hafa verið kunnugt um þetta og skrifar í athugasemd við færslu Egils:
„Í alvöru??“
Egill bætir síðan við í athugasemd við eigin færslu:
„Þetta er líka gleðiefni fyrir okkur Grikklandsvinafélagið Hellas - Anne Carson er menntuð í klassískum fræðum, hefur þýtt ljóð og leikrit úr grísku og fornmenningin sést glöggt í verkum hennar.“
Í annari færslu birtir Egill síðan ljóð eftir Carson.
Egill segir þó í svari við spurningu Gunnars Helgasonar rithöfundar um hvort þetta sé þá í annað sinn sem að íslenskur rithöfundur fær Nóbelsverðlaunin:
„Segi það kannski ekki, en við eigum svolítið í henni - og hún hefur verið hér aufúsugestur, afar viðkunnanleg kona.“
Höfðatalan
Í því samhengi hvort telja megi Carson vera Íslending þá vísar fjölmiðlamaðurinn Kristinn Hrafnsson til hinnar mikið notuðu höfðatölu:
„Ísland er núna komið í annað sæti sjálfstæðra og fullvalda þjóða með fjölda Nóbels verðlaunahafa, það er, ef við eignum okkur vesturbæinginn Önnu Carson. Sem sagt samkvæmt hinni frægu mælistiku „miðað við mannfjölda“. Sánkti Lúsía, litla eyríkið í Karíbahafinu (um 180 þúsund íbúar), hefur vinningin með tvo nóbelshafa, Arthur Lewis í hagfræði 1979 og Derek Walcott í bókmenntum 1992. Nú er stigataflan þessi: Sánkti Lúsía með 11 nóbelshafa per milljón íbúa, Ísland með 5 per milljón, Lúxemborg, Svíþjóð og Sviss í 3.-5. sæti með 3 per milljón.“
„Þetta er mitt fóður og framlag til þjóðrembings. Ekkert að þakka.“
Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstrisins nýtir tækifærið til að hnýta aðeins í þingmenn Miðflokksins og kröfur þeirra um að kröfur um íslenskukunnáttu þeirra sem fá íslenskan ríkisborgararétt verði hertar:
„Mér skilst að þingmenn Miðflokksins séu búin að leggja inn fyrirspurn um hvort Anne Carson uppfylli hæfniviðmið C1- samkvæmt Evrópska tungumálarammanum áður en þau ákveða hvort þau ætli að fagna nýja Nóbelnum.“
Vindurinn
Anne Carson hefur sagt frá því að eitt af því sem dró hana til Íslands sé vindurinn og þegar hún var spurð í samtali við fulltrúa sænsku nóbelsakademíunnar hvað hún væri að gera á Íslandi sagðist hún vera að hlusta á vindinn. Carson og eiginmaður hennar héldu einmitt út í göngutúr í rokinu í Vesturbænum eftir að hún var búin að fá nóg af því í bili að svara símtölum.
Melkorka Ólafsdóttir rithöfundur og ljóðskáld, sem er um þessar mundir að senda frá sér nýja ljóðabók, Hverfa, en útgáfu hennar verður fagnað í hófi í listasafni Einars Jónssonar klukkan 17, lítur einmitt til þessarar aðdáunar Carson á íslenska vindinum:
„Ég hef svo oft hugsað um það hvernig við lifðum veturna eiginlega af í þessu landi. Ég hugsaði það undir sænginni í morgun, þegar ég hlustaði á fyrstu almennilegu haustlægðina lemja gluggana. Og svarið kom að vörmu; við lifðum af vegna menningarinnar, baðstofunnar, samfélagsins, húslestranna. Það er í það minnsta afstaðan núna, á þessum fagnaðardegi, þegar Anne Carson vinnur nóbelsverðlaunin og svarar í síma nefndarinnar að hún sé hér heima á Íslandi, að hlusta á vindinn!“
Lilja Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins og fyrrum ráðherra menningarmála horfir svipuðuðum augum og Melkorka á tengsl Anne Carson við Ísland:
,,Að hlusta á vindinn.“
„Það er sérstaklega fallegt að heyra að þegar Anne Carson fékk símtalið um að hún hefði hlotið Nóbelsverðlaunin í bókmenntum var hún stödd á Íslandi, að hlusta á vindinn. Innilegar hamingjuóskir til þessa merka ljóðskálds og rithöfundar sem hefur auðgað heimsbókmenntirnar svona ríkulega og tengst Íslandi sterkum böndum. Hún hefur fundið sér heimili hér og er íslenskur ríkisborgari. Tengsl hennar við landið minna okkur á gildi þess að íslenskt menningarlíf sé opið og að hér sé rými fyrir sköpun og nýjar hugsanir. Íslenski vindurinn ber með sér óvenjulega góð tíðindi þennan morgun.“
Kanada
Forsætisráðherra Kanada Mark Carney telur þó alveg ljóst hvaða landi Anne Carson tilheyrir:
„Með hnyttni, ímyndunarafli og stíl sem er algjörlega hennar eigin hefur kanadíska ljóðskáldið Anne Carson endurskapað klassísku fræðin. Hún hefur fært fornar sögur til nýrra áheyrenda og umbreytt því hvernig við hugsum um bókmenntir. Til hamingju með að vinna Nóbelsverðlaunin í bókmenntum, Anne. Stórkostlegt afrek og stór stund fyrir Kanada.“