Breska leikkonan Kate Winslet beitti sjarmerandi en jafnframt „ákveðinni“ aðferð til að sannfæra leikstjórann James Cameron eftir að hún hafði farið í prufu fyrir hlutverk Rose í Titanic.
Winslet hefur lengi þótt ein af jarðbundnustu og hreinskilnustu stjörnum Hollywood, en Cameron benti á að hún byggi í raun yfir „mjög sterkum og ákveðnum persónuleika“, sem kom skýrt í ljós í ráðningarferlinu fyrir Titanic.
Winslet var aðeins 19 ára gömul þegar hún var valin í hið eftirminnilega hlutverk Rose Dawson Calvert, en hún var fjarri því að vera barnaleg þegar kom að því að sannfæra Cameron um að hún væri rétta konan í aðalhlutverkið.
„Hún sendi mér miða og eina rauða rós,“ rifjaði hinn Cameron upp á blaðamannafundi um gerð myndarinnar árið 2023. „Ég er Rose-in þín,“ skrifaði hún á blað, að því er fram kemur hjá leikstjóranum sem bætti við: „Þetta leiddi til þess að maður hugsaði: „Allt í lagi, Kate. Þú skilur þetta. Þú vilt þetta. Við skiljum þetta.“ Og við munum auðvitað taka okkar eigin ákvörðun. En Kate er mjög ákveðinn persónuleiki og hún hefur þann eiginleika að láta vilja sinn rætast í umhverfinu í kringum sig.“
Cameron tók fram að þessi eiginleiki hennar væri enn „auðsjáanlegur“ í dag, nú þegar hún framleiðir sínar eigin kvikmyndir.
En það var ekki bara hið eftirminnilega hlutverk sem heillaði hana við að leika í þessari Óskarsverðlaunuðu stórmynd. „Hún var mjög spennt þegar hún kom út af lestrinum með Leo,“ rifjaði hann upp og viðurkenndi að hann hefði strax séð þá „neista“ sem mynduðust á milli þeirra. „Ég er jú hvorki blindur, heyrnarlaus né mállaus, og hún staðfesti þetta eftir á,“ sagði Cameron.
Sagt er að Winslet hafi sagt leikstjóranum að Leonardo DiCaprio væri „sá rétti“ nánast um leið og hún hafði lesið með honum.
Í samtali við BAFTA rifjaði Winslet, sem í dag er 51 árs þriggja barna móðir upp tímann við gerð myndarinnar og lýsti honum sem „miklum tímamótum“ í lífi sínu. „Þetta voru mikil tímamót,“ sagði hún, „og líf mitt breyttist í raun og veru á einni nóttu. Ég man eftir degi þegar ég gat farið út og keypt dagblað og mjólkurfernur án nokkurra vandræða, en daginn eftir komst ég í raun ekki út úr húsi vegna ljósmyndaranna.“
Cameron sagði einnig um þau tvö: „Þau voru ung, en bæði komin vel á veg. Mér finnst líka rétt að við eignum okkur ekki heiðurinn af því að hafa komið ferli þeirra af stað. Leo var þegar búinn að leika í Romeo + Juliet*, mynd sem kom honum í stöðu aðalleikara. Fyrir Titanic var Kate þegar búin að byggja upp glæsilegan feril, meðal annars með myndum á borð við Heavenly Creatures (1994), Sense and Sensibility (1995) og Hamlet (1995).