„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín.“
Svona hefst bréf karlmanns til kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun. Hann óskar eftir ráðum. Hann er 26 ára og kærastan er 27 ára. Þau kynntust á bar og hefur hann verið yfir sig ástfanginn síðan.
„Ég fann strax fyrir mikilli hrifningu og hún líka. Við fórum á stefnumót og höfum verið óaðskiljanleg síðan,“ segir hann.
Þrír mánuðir eru liðnir og lífið leikur við þau, eða þar til í síðustu viku.
„Þegar við rákumst á frænku mína í búðinni. Hún hagaði sér mjög einkennilega þegar ég kynnti hana og kærustuna. Næsta dag varpaði mamma fram sprengju. Hún sagðist hafa gefið barn, dóttur, til ættleiðingar áður en hún kynntist föður mínum. Hún sagði mér fæðingardag og nafn hennar, og sagði að fjölskylda í nágrannabæ hefði ættleitt hana.
Ég skalf allur því lýsingin passaði fullkomlega við kærustuna mína. Þegar ég pæli í því þá er hún mjög lík mömmu minni á gömlum myndum.
Ég hef ekkert nefnt þetta við kærustuna mína. Þegar ég hitti hana síðast sagðist ég vera þreyttur svo við myndum ekki stunda kynlíf.
Þetta er alveg að fara með mig. Ég elska hana og get ekki ímyndað mér að missa hana, en ég veit ekki hvað ég á að gera.“
Ráðgjafinn svarar:
„Að uppgötva að kærastan þín gæti verið systir þín er martröð, en þú verður að komast að sannleikanum. Það er ólöglegt að eiga í kynferðislegu sambandi við systkini, jafnvel þó þið séu aðeins hálfsystkini.
Spurðu hana út í foreldra sína og hvort hún sé tilbúin að sækja um að fá fæðingarvottorðið sitt. Þegar það er komið á hreint getið þið tekið næstu skref. Ef þið eruð skyld þá vona ég að þið getið breytt sambandi ykkar í systkinasamband.“