Fókus

Greipur skemmtir í Sykursalnum

Mynd

Grínistinn Greipur Hjaltason verður með uppistand í Sykursalnum, Grósku, á fimmtudagskvöld og hefst sýningin kl. 21. Yfirskrift uppistandsins er „Greipjokes“. 

Síðar í mánuðinum fer Greipur í túr um Bretland og er nú þegar uppselt á nokkrar sýningar í túrnum sem ber heitið „The Icebreaker Tour.“ 

Greipur hefur vakið töluverða athygli fyrir grínmyndbönd sín á samfélagsmiðlum og margar stjörnur fylgja honum, t.d. leikarinn Bob Odenkirk, sem sló í gegn í þáttaröðinni „Better Call Saul“. 

Miða á uppistandið í Sykursalnum má nálgast hér.