Brooklyn Beckham virtist senda fjölskyldu sinni óræð skilaboð eftir að faðir hans, fyrrverandi fótboltastjarnan David Beckham, líkaði myndband af honum og eiginkonu hans, Nicolu Peltz, á samfélagsmiðlum.
Brooklyn klæddist bol með áletruninni: „It‘s not clocking to you,“ sem er vísun í orð söngvarans Justin Bieber þegar hann skammaði paparazzi-ljósmyndara fyrir að elta sig.
Frasinn merkir að einhver sé ekki að skilja eitthvað eða átta sig á einhverju. Justin Bieber var þá að segja við ljósmyndarana að þeir væru ekki að skilja að hann vildi vera látinn í friði.
Netverjar og erlendir fjölmiðlar telja Brooklyn vera að senda fjölskyldu sinni skilaboð með bolnum, þá aðallega föður sínum. David líkaði nýlega við myndband á Instagram af syni sínum og eiginkonu hans, eftir að Brooklyn sagði foreldrum sínum að hætta að reyna að hafa samband við sig á samfélagsmiðlum. Hann sagði fjölskyldu sína líta á sig sem markaðsvöru og að hann vildi ekki taka þátt í því.
Það eru liðin næstum tvö ár eftir að Brooklyn fjarlægðist fjölskyldu sína og hafa ósætti þeirra verið mikið í fréttum.
Sjá einnig: Brooklyn Beckham rýfur þögnina um svakalega fjölskyldudramað
Þetta byrjaði allt sumarið 2022, þá voru háværar sögusagnir á kreiki um að kalt væri á milli Victoriu og Nicolu vegna þess að Nicola hafi neitað að klæðast brúðarkjól sem Victoria hannaði, en sagt er að Nicola hafi ætlað að gera það og síðan skipt um skoðun. Erlendir miðlar greindu frá því að þær „þola ekki hvor aðra og talast ekki við.“
Síðan þá hefur dramað undið upp á sig og var greint frá því í sumar að Brooklyn væri hættur að tala við fjölskyldu sína.
Sjá einnig: Brooklyn Beckham lokar á fjölskylduna og svarar ekki skilaboðum