Þyngdarstjórnunarlyf hafa tröllriðið lyfjaumræðunni undanfarin ár. Um tíma virtust allir og amma þeirra vera á Ozempic, samheitalyfinu Wegovy eða öðrum skyldum lyfjum. Þessi lyf hafa hjálpað fólki að halda blóðsykrinum í skefjum en vinsælustu áhrifin eru þau að fólk léttist gjarnan á lyfinu. Wegovy kom einmitt á markað sem sérstakt þyngdarstjórnunarlyf þar sem Ozempic kom fyrst og fremst á markað sem sykursýkislyf. Eins og flest lyf veldur Ozempic aukaverkunum. Fyrst og fremst er um að ræða meltingartengdar verkanir á borð við uppköst og niðurgang en neytendur hafa eins upplýst um útlitsbreytingar á kynfærum, slappa húð sem tengist miklu þyngdartapi á skömmum tíma og svo hafa komið upp alvarlegar en sem betur fer sjaldgæfar aukaverkanir á borð við sjónmissi.
Ein af þeim aukaverkunum sem hafa valdið heilabrotum er svokallað Ozempic-hár, eða hármissir í tengslum við þyngdarstjórnunarlyf af gerðinni GLP-1, sem eru lyf á borð við Ozempic, Wegovy og Zepound.
Karlahöfuðskalli og GLP-1-viðtakar
Nú hefur birst rannsókn sem gefur til kynna tengsl á milli GLP-1 hormónsins og karlahöfuðskalla. Rannsóknin birtist í Journal of Investigative Dermatology en þar fundu rannsakendur NYU Langone Health tengingu á milli hærri gilda GLP-1 viðtaka í blóði og hárþynningar karlmanna. Niðurstaðan þýðir ekki að allir karlmenn sem taka inn þyngdarstjórnunarlyf af þessari gerð muni fá skalla. Þegar fólk borðar mat losar líkaminn GLP-1 hormónið. Hormónið binst GLP-1-viðtökum í líkamanum sem við það fá skilaboð um að tími sé kominn til að hægja á meltingu, losa insúlín og tilkynna heilanum að líkaminn sé saddur. Þyngdarstjórnunarlyfin herma eftir þessu hormóni og valda þannig þyngdartapi. Rannsakendur tóku til skoðunar fólk sem er með erfðaafbrigði sem hafa verið tengd við meira magn GLP-1 viðtaka í líkamanum af náttúrunnar hendi. Viðbragð við hormóninu kann því að vera sterkara hjá þessum aðilum. Rannsakendur könnuðu svo hvort þessi erfðaafbrigði tengdust karlahöfuðskalla (e. male pattern baldness) eða hopandi hárlínu, hárþynningu við gagnaugu og skallabletti á hvirfli.
Niðurstaðan var sú að menn með meiri GLP-1 virkni voru 7 prósent líklegri til að glíma við karlahöfuðskalla en aðrir, sem gefur til kynna að þetta tvennt kunni að tengjast. Rétt er þó að taka fram að enginn þátttakenda í rannsókninni var að taka inn þyngdarstjórnunarlyf. Þarna var verið að skoða GLP-1 viðtaka.
„Þetta eru vísbendingar en ég tel að við getum ekki sagt að um orsakasamhengi sé að ræða,“ segir húðlæknirinn Justin Ko, sem sérhæfir sig í hárlosi, í samtali við The Washington Post. Hann er ótengdur rannsókninni en bendir á að erfðafræðileg tengsl jafngildi ekki lyfjaáhrifum.
Eins er vert að taka fram að flestir þátttakendur voru karlmenn af evrópskum uppruna og því er einnig óvíst hvort að þessar niðurstöður eigi við um aðra hópa karlmanna.
Þannig bendir niðurstaðan til mögulegra líffræðilegra tengsla milli GLP-1 og karlahöfuðskalla en skýrir þó ekki hvers vegna margir hafa greint frá hármissi eftir að þeir byrjuðu á þyngdarstjórnunarlyfjum.
Mikið og hratt þyngdartap getur valdið tímabundnu hárlosi
Annar húðlæknir sem The Washington Post ræddi við sagðist oft sjá hárlos hjá sjúklingum sem taka GLP-1-lyf, en erfitt sé að greina hvað veldur.
„Það gæti verið lyfið, það gæti verið þyngdartapið, það gætu verið efnaskiptabreytingar, það gæti verið næringarskortur. Það er margt ólíkt sem gæti verið í gangi þarna,“ sagði húðlæknirinn Garolyn Goh.
Þekkt er að mikið þyngdartap á skömmum tíma, hvort sem það er vegna öfgakenndra megrunarkúra, þyngdarstjórnunarlyfja eða efnaskiptaaðgerða, getur valdið álagi í líkamanum og þar með hárlosi. Fólk fær minna af næringarefnum sem eru nauðsynleg hárvexti, svo sem prótín, kalsíum, fólat, B12 og járn. Þegar hárlos á sér stað með slíkum hætti fellur hár alls staðar af hársverðinum. Hárlos vegna álags í líkamanum hefst ekki samstundis heldur getur átt sér stað nokkrum mánuðum eftir streituvaldinn.
Líklegast er þó hollt að átta sig á því að fólk geti tapað meiru en bara þyngd á þyngdarstjórnunarlyfjum.
Þeir sem hafa áhyggjur af hárlosi vegna þyngdarstjórnunarlyfja ættu að ræða við lækninn sinn og tryggja að þeir fái fullnægjandi næringu til að tryggja hárvöxt og viðhald vöðva- og beinmassa. Eins bendir Justin Ko á að það sé engum hollt að léttast hratt. Stundum sé gott að hægja aðeins á þyngdartapinu til að létta álagi af líkamanum. Hárlos vegna streituvalds er í flestum tilvikum tímabundið og þegar líkaminn hefur aðlagast nýrri þyngd og gott jafnvægi aftur komið á næringu þá nær hárið sér oftast aftur á strik. Haldi það áfram er best að leita til húðlæknis sem getur metið hvort þarna sé um aukaverkun þyngdartaps að ræða eða einhvern annan kvilla.
Goh segir fólki að afskrifa ekki þyngdarstjórnunarlyf vegna ótta um hárlos. Jafnvel þeir sem glíma við eða telja sig líklega til að glíma við karlahöfuðskalla ættu ekki að hræðast þessar 7 prósent auknu líkur sem áðurnefnd rannsókn gaf til kynna. Komi til hárloss sé best að láta greina hvað veldur og sé um álagstengt hárlos að ræða þá sé það í flestum tilvikum tímabundið.
Heimild: The Washington Post