Fókus

Byrjaði að grafa göng undir húsið sitt fyrir 4 árum

Mynd
Kala kallar sig @engineer.everything á TikTok

Það eru komin fjögur ár síðan hin bandaríska Kala byrjaði að grafa göng undir heimili sitt í Virginíu í Bandaríkjunum. Hún hefur verið dugleg að sýna frá öllu ferlinu á TikTok og er þekkt sem „Tunnel Girl“ á miðlinum.

Í nýlegu myndbandi fagnar Kala því að fjögur ár séu liðin frá því að hún byrjaði á þessu stóra verkefni. Hún útskýrir að framkvæmdirnar hafi ekki byrjað af nauðsyn, heldur hafi henni einfaldlega leiðst vegna heimsfaraldurs og viljað prófa eitthvað nýtt.

Kala hefur séð mestmegnis um verkið sjálf, meðal annars að grafa, styrkja göngin og steypa.

Hún þurfti um tíma að stöðva framkvæmdir árið 2024 þegar bæjaryfirvöld kröfðust þess að hún fengi viðeigandi leyfi og fagaðila til að fara yfir öryggismál. Kala fylgdi því og fékk að hefja framkvæmdir á ný árið 2025.

Kala viðurkennir að verkefnið sé orðið miklu stærra en hún hafi reiknað með í upphafi. Hún hefur meðal annars þurft að fjarlægja yfir 250 tonn af grjóti úr kjallaranum. Sjáðu myndbandið.

@engineer.everything Shall I go bigger? #engineering #tunnel #mining #minecraft #suburbanmine ♬ Into Eternity - SergePavkin