Rapparinn Ice Spice, sem heitir réttu nafni Isis Naija Gaston, og leikkonan Millie Bobby Brown eru staddar á Íslandi og virðast vera að njóta í botn eins og má sjá á færslum þeirra á samfélagsmiðlum.
Ice Spice birti myndir af sér í sjóböðunum í Hvammsvík en hún braut líka reglurnar og tók eina speglamynd í búningsklefanum.
Á Hvammsvik.is kemur fram: „Það er stranglega bannað að nota hverskyns myndavéla- og upptökutæki í búningsklefum.“
Sem betur fer sést ekki í neinn fyrir aftan hana.
Mynd
Mynd/Instagram
Millie hefur líka birt myndir frá Íslandsheimsókninni, en eiginmaður hennar, Jake Bongiovi, er líka á klakanum.