Söngkonan Kolfreyja Sól Bogadóttir, betur þekkt sem Alaska, bað nágrannakonu sína afsökunar þegar hún vann níunda sporið í AA-samtökunum. Hún segir frá þessu í hlaðvarpsþættinum Tvöfalt tjón.
Kolfreyja segir að eins og venjan er hafi hún beðið fjölskyldu og vini sem hún hafði sært afsökunar þegar hún vann níunda sporið.
„En svo var ein kona, nágranni minn... Þetta var bara mjög fín kona, að ég held, þetta var bara rosa fín kona. En í svona tvö ár fokkaði ég á hana í hvert einasta skipti sem ég labbaði fram hjá,“ segir Alaska.
„Bara í hvert einasta skipti fokkaði ég á hana, ég vildi að hún vissi það að ég hataði hana. Ég veit ekki af hverju, mér fannst þetta bara fyndið. Þetta er sko fáránlegt.“
Kolfreyja ákvað að biðja konuna afsökunar á þessum tíma.
„Ég hitti hana í innkeyrslunni og hún var hrædd við mig [...] Ég hélt að þetta væri „no biggie“ og ég sagði: „Sorrí, ég er búin að vera edrú núna í níu mánuði og veit ekki af hverju ég var að gera þetta.“ Hún fór að gráta, þetta [hafði mikil áhrif á hana], bara ömurlegt.“
Sú sem segist vera dóttir konunnar skrifaði athugasemd við myndbandið á TikTok: „Man eftir að hafa verið hrædd við þig sem barn.“
@tvofalttjon #15 🖕🏼@alaska1867 ♬ original sound - Tvöfalt Tjón 💥