Fókus

Áður en frægðin bankaði á dyrnar klæddust þessir leikarar herklæðum

Mynd

Á stóra skjánum birtast Hollywood-leikarar okkur í ýmsum hlutverkum, þeir eru draumaprinsinn í rómantísku gamanmyndinni, hetjan í hasarmyndinni, elskulegi lúðinn í grínmyndinni og svo framvegis. Við þekkjum þá frá rauðum dreglum verðlaunahátíða, úr slúðurfréttum um ástarlífið, glamúrinn og frægðina. En ólíkt hergyðjunni Aþenu sem stökk í fullum herklæðum úr höfði Seifs með miklu ópi, birtast leikarar ekki skyndilega í pressuðum jakkafötum með milljón dala bros fyrir framan myndavélarnar. Á undan frægðarsól sumra leikara einkenndist líf þeirra af einkennisbúningum og ströngum aga í bandaríska hernum.

Adam Driver

Leikarann Adam Driver þekkja margir úr nýjasta Star Wars-þríleiknum þar sem hann fór með hlutverk Kylo Ren, en áður hafði hann slegið í gegn í þáttunum Girls. Færri vita þó að Driver gekk í herinn fljótlega eftir hryðjuverkaárásina 11. september 2001 og varði næstu þremur árunum sem landgönguliði. Eftir að hjólaslys varð Driver leystur undan herþjónustu af læknisfræðilegum ástæðum og þá hóf hann leiklistarnám við Julliard-háskóla. Leikarinn segir að tími hans í hernum sé enn það sem hann er stoltastur af í lífinu.

Mynd

Morgan Freeman

Stórleikarann Morgan Freeman þekkja flestir úr stórmyndum á borð við The Shawshank Redemption, Seven og The Dark Knight. Þegar Morgan var táningur og hafði nýlokið skyldunámi gekk hann í flugherinn þar sem hann þjónaði á árunum 1955-1959 en þá var hann leystur undan herþjónustu með góðum vitnisburði. Hann segist dag einn hafa setið í flugmannssæti í æfingarlíkani og áttað sig á því að hann dreymdi í raun ekki um að verða herflugmaður, hann vildi verða leikari.

Mynd

Gene Hackman

Leikarann Gene Hackman, heitinn, þekkjum við úr fjölda kvikmynda á borð við The French Connection, Unforgiven, Superman og The Royal Tenenbaums. Áður en hann sneri sér að leik varði hann 6 árum í hernum þar sem hann sinnti meðal annars herblaðamennsku. Hann var meðal annars sendur til Kína í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar og síðar til bæði Hawaii og Japan. Árið 1952 lenti hann í alvarlegu mótorhjólaslysi og var í kjölfarið leystur undan herþjónustu af læknisfræðilegum ástæðum.

Mynd

Mel Brooks

Spéfuglinn Mel Brooks er þekktur fyrir grínmyndir á borð við Spaceballs, Blazing Saddles, Robin Hood: Men in Tights og fleiri. Hann er 100 ára gamall en er enn að, en myndin Spaceballs: The New One er væntanleg í kvikmyndahús á næsta ári. Mel Brooks var kvaddur í herinn árið 1944 og var skömmu síðar sendur til Frakklands til að berjast í seinni heimsstyrjöldinni. Hann lýsti því síðar að þrátt fyrir hörmungar stríðsins hafi hann haldið í húmorinn.

„Þetta er annaðhvort náðargáfa, greind eða heimska,“ sagði hann eitt sinn í viðtali en hann hefur lýst því að eitt sinn hafi hann heyrt herlið nasista syngja áróðurssöngva í gegnum gjallarhorn. Fann Brooks þá sitt eigið gjallarhorn og byrjaði að syngja hástöfum lagið Toot, Toot, Tootsie eftir Al Jolson, sem var gyðingur. Söngur Brooks kom nasistunum að óvörum.

„Þeir vissu í fyrstu ekki sitt rjúkandi ráð, allt þar til nokkrir þeirra fóru að klappa.“

Árið 1946 var hann leystur undan herskyldu með góðum vitnisburði og gat þá einbeitt sér af fullum þunga að skemmtanabransanum, og það án manntjóns.

Mynd
Mynd/US Department of War

Ice-T

Rapparinn og leikarinn Ice-T er þekktur fyrir að vera töffari með glæpsamlegu ívafi, enda hefur hann hlotið nokkra refsidóma, þar með talið fyrir skartgriparán, vændissölu og smáglæpi. Síðan sneri hann sér að tónlist og eins er hann þekktur fyrir hlutverk sitt í þáttunum Law & Order: Special Victims Unit. Færri vita að Ice-T, sem heitir réttu nafni Tracy Lauren Marrow, gekk í herinn árið 1977, þá aðeins 19 ára gamall, til að sjá fyrir fjölskyldu sinni og til að halda sér á beinu brautinni. Frægt var þegar hann neitaði að fara í fallhlífahermannaþjálfun (en eftir slíka þjálfun fá hermenn rauða alpahúfu) vegna þess að hann var úr hverfi Crips-gengisins í Los Angeles og gat ekki snúið til baka heim klæddur í rautt. Hann lauk fjögurra ára herskyldu og sneri sér svo að öðru.

Mynd

Bob Newhart

Leikarinn og uppistandarinn Bob Newhart er þekktur fyrir svipbrigðalausan húmor sinn (e. deadpan) og stam. Lesendur kannast líklega við Newhart úr kvikmyndinni Elf eða úr sjónvarpsþáttunum Big Bang Theory. Newhart gegndi herþjónustu á dögum Kóreustríðsins, á árunum 1952-1954.

Mynd

Drew Carey

Grínistann Drew Carey þekkja flestir úr samnefndum grínþáttum eða spunaþáttunum Whose Line Is It Anyway? Carey lauk herþjálfun og var í varaliði hersins á árunum 1980–1986 og vann sig upp í stöðu liðþjálfa áður en hann var leystur undan herþjónustu með góðum vitnisburði. Það var í hernum sem Drew Carey uppgötvaði hárgreiðsluna sem átti eftir að fylgja honum út í lífið – burstaklippingu.

Hér að ofan er engan veginn um tæmandi talningu að ræða enda uppgjafahermenn Hollywood fleiri en rúmast í einni svona grein.

Mynd