Fókus

Stefán hélt í 13 ár að hann mætti ekki gefa blóð: „Kannski eru fleiri þarna úti í sömu stöðu“

Mynd
Stefán Pálsson

Stefán Pálsson, sagnfræðingur, varaborgarfulltrúi og þjóðfélagsrýnir greinir frá því að í 13 ár hafi hann staðið í þeirri meiningu að hann mætti ekki gefa blóð í Blóðbankanum. Komst hann að því fyrst gær að það er ekkert sem útilokar hann frá því að gefa blóð. Veltir hann fyrir sér hvort fleiri séu í sömu stöðu.

Stefán segir á Facebook:

„Fyrir þrettán árum fór ég sneypuför í Blóðbankann. Mér var snúið við í afgreiðslunni og í móttökuforritið var skrifað: „Má aldrei koma aftur.“ Þetta var ekki vegna þess að ég hefði skandalíserað eða reynt að stelast í lagerinn, heldur var ég kominn á lyf til að mjaka niður blóðþrýstingnum og þar með mátti ég ekki lengur gefa. Það var drullusvekkjandi enda var ég mjög ánægður með töluna á blóðgjafaskírteininu mínu.“

Í gærmorgun var Stefán að ræða við lækni og segist hafa sagt honum frá þessu. Læknirinn hafi sagt að það væri löngu búið að endurskoða þessar reglur:

„Ég var því ekki seinn á mér að mæta niður á Blóðbanka sem staðfesti að á næstunni geti ég farið að láta tappa af mér á nýjan leik. Ekki kom fram hvort bankinn muni innheimta hina uppsöfnuðu blóðskuld alla í einu eða hvert þessu verði skipt upp í fleiri innborganir.“

Segist Stefán velta fyrir sér hvort fleiri blóðgjöfum, sem hafi verið á blóðþrýstingslyfjum, hafi á sínum tíma verið meinað að gefa blóð en viti ekki af því að reglur þessa efnis gildi ekki lengur.