Fókus

Michael Douglas rýfur þögnina um þrálátan orðróm

Mynd
Michael Douglas. Mynd/Getty

Bandaríski stórleikarinn Michael Douglas hefur vísað á bug orðrómi sem hefur fylgt honum í áratugi, þess efnis að hann hafi glímt við kynlífsfíkn.

Douglas, sem er 82 ára, ræðir málið bæði í nýrri ævisögu sinni, One Helluva Ride, og í viðtali við The Sunday Times.

Þar var hann spurður hvort hann hefði einhvern tímann velt því fyrir sér hvers vegna hann hefði sofið hjá svo mörgum konum.

„Ég veit ekki hvort ég svaf hjá svona mörgum konum. Ég lít ekki þannig á það,“ svaraði Douglas. „Ég var heilbrigð afurð sjöunda áratugarins.“

Sögusagnir um að Douglas væri kynlífsfíkill komust á flug á tíunda áratugnum og var því meðal annars haldið fram að hann hefði farið í meðferð vegna fíknarinnar.

Douglas tekur af allan vafa um málið í nýju bókinni.

„Ég var aldrei fokking kynlífsfíkill,“ skrifar hann.

Leikarinn fer þó ekkert í felur með að ástarlíf hans hafi verið viðburðaríkt. Í bókinni greinir hann meðal annars frá ástarsambandi sínu við Kathleen Turner, mótleikkonu sína í Romancing the Stone, sem þau héldu leyndu í um fjóra áratugi.

Douglas var þá kvæntur Diöndru Luker en segir hjónaband þeirra hafa verið komið á erfiðan stað. Hann og Turner hafi fallið harkalega hvort fyrir öðru við gerð myndarinnar.

„Kathleen var klár, fyndin og kynþokkafull, með djúpa og seiðandi rödd sem varð hennar helsta einkenni,“ skrifar Douglas.

Sambandinu lauk eftir að Luker heimsótti tökustaðinn. Douglas segir Turner þá hafa ákveðið að draga sig í hlé þar sem hún vildi ekki blanda sér í hjónaband þeirra. Douglas og Luker slitu síðar samvistum árið 1995.

Þegar Douglas kynntist Catherine Zeta-Jones árið 1998 var hann að hitta nokkrar konur samtímis.

Zeta-Jones gerði honum fljótt ljóst að ef samband þeirra ætti að halda áfram yrði hann að velja hana og aðeins hana. Douglas segist því hafa hringt „fimm snögg símtöl“ til kvennanna sem hann var að hitta og bundið enda á þau sambönd.

Douglas og Zeta-Jones gengu í hjónaband árið 2000 og fögnuðu 26 ára brúðkaupsafmæli sínu á þessu ári.

Aðspurður hvort eiginkona hans væri kvíðin fyrir útgáfu ævisögunnar sagði Douglas að hún hefði ekki enn lesið bókina. Hjónaband þeirra væri þó „í góðu standi“.