Bandaríski faðirinn Edward Gillen, 59 ára, segist hafa misst sjónina varanlega eftir að hafa notað Ozempic. Hann hefur höfðað mál gegn framleiðanda lyfsins, Novo Nordisk.
Gillen var með sykursýki og byrjaði á lyfinu árið 2024. Ári síðar, í lok maí 2025, tók hann eftir bletti í öðru auganu. Sjónin versnaði með hverjum deginum og eftir um viku var hann orðinn alveg blindur.
Læknar sögðu honum að hann væri með sjaldgæfan augnsjúkdóm, non-arterior ischemic optic neuropathy (NAION) sem hefur verið tengdur við GLP-1 lyf á borð við Ozempic, Wegovy og Mounjaro. Um er að ræða blóðþurrð í auga sem veldur skyndilegri og sársaukalausri sjónskerðingu.
Sjá einnig: Megrunarlyfin Wegovy og Ozempic gætu valdið sjaldgæfri og skyndilegri blindu
Það er ekki sannað að Ozempic valdi blindu en það eru rannsóknir sem hafa fundið tengsl milli semaglútíðs, virka efnisins í GLP-1 lyfjum, og aukinnar hættu á NAION.
„Maður trúir þessu ekki, maður er bara: Hvað í fjandanum er í gangi? Maður þarf að læra allt upp á nýtt; að elda, setja mat á disk, borða, sitja við borðið. Þú getur ekki farið út úr húsi.“
Lögsókn Gillen er ein af yfir 200 málum gegn framleiðendum GLP-1-lyfja þar sem því er haldið fram að lyfin hafi valdið blindu.
Sjá einnig: Blindur eftir notkun þyngdartapslyfs
Sjá einnig: Missti 65 kíló á Ozempic - „En ég er líka að missa vitið, minnið, sjónina, málið og heyrnina“