fbpx
Fimmtudagur 12.febrúar 2026
Fókus

Segist hafa orðið fyrir stórfurðulegri reynslu á veitingastað í Reykjavík

Fókus
Þriðjudaginn 13. janúar 2026 19:30

Það kemur varla á óvart að Reykjavík er með flesta íbúa án tilgreinds heimilisfangs. Mynd/Pixabay

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erlendur ferðamaður lýsir í færslu á Reddit upplifun af heimsókn á veitingastað í Reykjavík sem hann segir hafa verið furðulega og skemmt fyrir sér upplifunina af Íslandsferðinni.

Ferðamaðurinn segist hafa nokkrum sinnum áður komið til Íslands en sé nú staddur hér í fyrsta sinn síðan að Covid-faraldurinn geisaði.

Hann segist hafa komið á staðinn í fyrri Íslandsheimsóknum og borði alltaf morgunmat þar á meðan hann dvelur hér en hann segir staðinn auglýsa að morgunmatur sé seldur til klukkan 11 á morgnana. Ferðamaðurinn segir gott andrúmsloft einkenna staðinn. Hann segist hafa komið á staðinn í þetta sinn nánast beint úr flugvélinni en hann hafi gengið þangað frá biðstöð fyrir rútur.

Ferðamaðurinn segist hafa komið á staðinn um klukkan 10 og pantað en pöntunin hafi verið þess eðlis að það hefði átt að vera fljótlegt að matreiða hana. Fimmtán mínútur hafi liðið en ekkert bólað á matnum, þá hafi hann pantað aukalega latte sem hafi borist. Hálftími hafi síðan liðið í viðbót en ekkert bólað enn á morgunmatnum sem hann pantaði og klukkan alveg að verða 11. Hann hafi staðið upp til að kanna málið en þá hafi starfsmaður rétt honum spjald þar sem hafi verið beiðni um að hann skrifaði um reynslu sína af staðnum á netinu.

Ferðamaðurinn segist þá hafa orðið forviða og hafi spurt starfsfólkið hvað væri eiginlega að gerast sem hafi svarað til að morgunmaturinn væri ekki lengur í boði þann daginn og hann yrði að borga fyrir bollan af latte sem hann fékk:

„Þetta var mjög skrýtin reynsla og eyðilagði eiginlega spenninginn fyrir því að byrja Íslandsferðina.“

Hann telur líklegt að pöntun sín hafi gleymst sem sé samt furðulegt þar sem hann hafi pantað af matseðlinum og starfsfólk tekið niður pöntunina. Mögulega hafi tungumálaörðugleikar spilað þarna inn í en hann hafi fundið annan stað þar sem hann hafi fengið sér morgunmat.

Í athugasemdum er ferðamaðurinn spurður hvers vegna hann hafi látið sig hafa það að bíða svona lengi án þess að spyrjast fyrir um ástæður tafanna. Einn segir þó furðulegt að starfsfólk hafi ekki bætt fyrir mistökin á einhvern hátt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Dánarorsök Catherine O‘Hara gerð opinber

Dánarorsök Catherine O‘Hara gerð opinber
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu Super Bowl auglýsingarnar 2026 – Rándýr stjörnum prýdd auglýsingapláss

Sjáðu Super Bowl auglýsingarnar 2026 – Rándýr stjörnum prýdd auglýsingapláss
Fókus
Fyrir 2 dögum

Jón gerði könnun á Litla-Hrauni – „Þegar sjö rétta upp hönd, erum við þá ekki að gera eitthvað skakkt sem samfélag?”

Jón gerði könnun á Litla-Hrauni – „Þegar sjö rétta upp hönd, erum við þá ekki að gera eitthvað skakkt sem samfélag?”
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sævar Karl selur einstaka eign

Sævar Karl selur einstaka eign
Fókus
Fyrir 1 viku

Réttað yfir svarta sauði norsku konungsfjölskyldunnar – Móðir hans er verðandi drottning en hver er pabbi hans?

Réttað yfir svarta sauði norsku konungsfjölskyldunnar – Móðir hans er verðandi drottning en hver er pabbi hans?
Fókus
Fyrir 1 viku

Kim Kardashian í eldheitu ástarsambandi með heimsfrægum kærasta

Kim Kardashian í eldheitu ástarsambandi með heimsfrægum kærasta