Fókus

Svona hefndi Mark Wahlberg sín á Harvey Weinstein

Mynd
Joaquin Phoenix og Mark Wahlberg í The Yards.

Í nýútkominni endurminningabók Ari Emanuel, Roll the Calls, minnist umboðsmaðurinn á að hafa fengið skjólstæðing sinn, Mark Wahlberg, sem þá var upprennandi leikari, með í glæpamyndina The Yards frá árinu 2000, þar sem einnig léku Joaquin Phoenix, Charlize Theron, Faye Dunaway, Ellen Burstyn og James Caan.

Mynd
Wahlberg og Emanuel.

Allir höfðu „miklar vonir“ til myndarinnar, „sérstaklega Wahlberg, sem var enn að leita að því að slá í gegn,“ skrifar Emanuel.

Framleiðandinn var þó óþolandi samkvæmt Emanuel. „Maður vissi aldrei hvaða rugli þessi gaur tæki upp á. Og viti menn, hann byrjar að mæta í klippiherbergið og skipta sér af því sem á ekki undir hann ... Þessi framleiðandi er auðvitað Harvey Weinstein.“

Mynd

Myndi var sýnd á kvikmyndahátíðina í Cannes þar sem gagnrýnendur rökkuðu hana niður. Wahlberg var miður sín yfir því að hluti af senum hans með „hugrakkri frammistöðu“ hans voru klipptar út.

Mynd
Aðstandendur myndarinnar á Cannes.

Undir lok hátíðarinnar borðaði Wahlberg kvöldmat í svítunni sinni með Emanuel og pantaði rauðvín.„Ekki bara hvaða rauðvín sem er, heldur eitt það dýrasta í heimi,“ skrifaði Emanuel. „Petrus. Ég veit ekkert um vín en veit samt að það er alvöru vín. Meðalaldur Petrus-vínviðar er eldri en afi minn. Hver flaska kostar einhvers staðar í kringum 10.000 dollara.“

Wahlberg pantaði „margar flöskur og lét skrifa þær á reikninginn hjá Harvey“. „Hefnd,“ sagði Wahlberg, lyfti glasi sínu og við skáluðum.“

Síðasta kvöldið á Cannes var haldin risastór veisla þar sem Weinstein hljóp ævareiður til Emanuels. „Skjólstæðingur þinn fór yfir strikið, Ari!“ öskraði Weinstein að sögn Emanuel. „Petrus? PETRUS? Þetta drasl er rándýrt!“

Þrátt fyrir að vera skapbráður ákvað Emanuel að halda ró sinni þangað til Weinstein, sem afplánar nú fangelsisdóm fyrir nauðgun,  potaði í bringu hans með fingri sem „lítur út eins og litlar gulrætur dýfðar í mótorolíu“.

„Ég sagði Harvey að hætta þessu og ég lofaði því að ef hann legði nokkurn tímann aftur óhreinu, smáu fingurna sína á mig, myndi ég brjóta þá af honum einn af öðrum,“ segir Emanuel.

Mynd
Harvey Weinstein.

Blaðafulltrúi Weinsteins brást við frásögninni og sagði við Page Six: „Harvey man eftir ágreiningi varðandi kvikmyndir og kostnað í tengslum við flest verkefni, en hvort Mark Wahlberg hafi pantað dýrt vín í Cannes og látið Harvey borga reikninginn fyrir meira en 25 árum er ekki eitthvað sem hann man eftir eða getur staðfest með óháðum hætti. The Yards er ein af uppáhaldsmyndum Harveys, Mark Wahlberg skilaði frábærri frammistöðu og myndin var valin til sýninga í Cannes.“

Endurminningar Emanuel sem komu út 17. september, innihalda einnig áhugaverðar upplýsingar um samskipti hans við Elon Musk, Larry David og Donald Trump.