Fókus

Mel Gibson aftur í klandri: „Stundum gerir maður heimskulega hluti“

Mynd
Mel Gibson. Mynd/Getty

Stórleikarinn Mel Gibson hefur fengið á sig harða gagnrýni eftir að hann virðist herma eftir táknmálstúlki þegar hann kom fram á hátíð í Kanada um helgina. 

Þegar Gibson steig inn á sviðið til að ávarpa aðdáendur veifar hann út í salinn og gera einhverjar handahreyfingar líkt og táknmálstúlkurinn áður en hann bendir út í sal.

Upptaka af atviki fer nú sem eldur í sinu um netheima þar sem Gibson er harðlega gagnrýndur.

„Af hverju varstu að þessu. Táknmálstúlkurinn er bara að vinna vinnuna sína og fólk er að klappa fyrir þér. Samt þarftu að gera grín að henni,“ segir einn.

Aðrir segja þetta „ógeðslegt“ og „hræðilegt“. Gibson segir í yfirlýsingu til Page Six að hann hafi ekki meint neitt illt með þessu.

„Stundum þegar manni er ýtt út á svið í mitt sviðsljósið þá fer hugurinn út um allt. Stundum gerir maður heimskulega hluti,“ segir Gibson. „Það var engin illska á bak við þetta og ég bið alla innilegrar afsökunar.“

Gibson hefur margoft lent í klandri fyrir hegðun sína, sem yfirleitt má rekja til áfengisneyslu en það á ekki við í þessu tilfelli. Árið 2006 var hann handtekinn fyrir ölvunarakstur og lét hann ýmis orð falla um gyðinga og konur, hafði það slæm áhrif á ferilinn. Árið 2010 lenti hann tvisvar í vandræðum vegna orða sinna um konur, samkynhneigða og gyðinga.