Fókus

Hollendingar verða ekki með á Eurovision – Segja keppnina ekki hlutlausa lengur

Mynd
Hollendingar unnu keppnina síðast árið 2019. Mynd/Getty

Hollendingar munu ekki taka þátt í Eurovision söngvakeppninni árið 2027. Þetta staðfestir Taco Zimmerman, framkvæmdastjóri ríkisfjölmiðilsins AVROTROS.

„Það er óumdeilt að alþjóðlegar deilur eru í auknum mæli að hafa áhrif á keppnina,“ sagði Zimmerman. „Eurovision er þess vegna orðinn vettvangur fyrir klofning.“

Hollendingar voru ein af þeim þjóðum sem sniðgekk Eurovision í ár, ásamt Íslendingum, Írum, Spánverjum og Slóvenum. Óvíst er hvort nokkur þessara þjóða snúi aftur í keppnina að ári.

Hollendingar hafa tekið þátt í flestum Eurovision keppnum frá upphafi, árið 1956. Árið 2026 var í fimmta skipti sem þeir tóku ekki þátt. Hollendingar eru líka ein af sigursælustu þjóðunum og hafa unnið keppnina fimm sinnum, síðast árið 2019.

RÚV hefur ekki tekið ákvörðun um hvort Íslendingar taki þátt að ári. Það mun skírast í haust. Keppnin verður haldin í borginni Burgas í Búlgaríu 11. til 15. maí.