Rokksveitin DIMMA hefur kynnt til leiks nýjan söngvara og um leið sent frá sér sitt fyrsta nýja lag í fimm ár. Töluverðar breytingar hafa orðið á skipan sveitarinnar eftir stormasama tíma fyrr á árinu þegar Stefán Jakobsson, betur þekktur sem Stebbi Jak, yfirgaf sveitina eftir um 15 ára samstarf.
Nýr söngvari Dimmu heitir Ivan Mendez og heyrist í fyrsta sinn með sveitinni í laginu Skarkali! sem er komið út á helstu streymisveitum.
„DIMMA snýr nú aftur tvíefld, með nýja liðskipan og nýtt lag sem ber heitið Skarkali!“ segir í tilkynningu sveitarinnar á samfélagsmiðlum.
Þar kemur jafnframt fram að lagið sé það fyrsta sem heyrist frá Dimmu í fimm ár og gefi forsmekk að sjöundu breiðskífu sveitarinnar, sem nú er unnið að og stefnt er að því að gefa út á næsta ári.
Auk Ivans skipa Dimmu þeir Skúli Gíslason trommuleikari, Silli Geirdal bassaleikari og Ingó Geirdal gítarleikari.
Mannabreytingarnar koma í kjölfar mikilla deilna innan sveitarinnar fyrr á árinu. Stebbi Jak tilkynnti í apríl að hann væri hættur í Dimmu eftir um 15 ár sem söngvari sveitarinnar.
Brottför hans kom í kjölfar þess að hann var sýknaður í Héraðsdómi Reykjaness af ákæru um líkamsárás. Málið hafði haft mikil áhrif á samskipti innan Dimmu en maðurinn sem sakaði Stefán um líkamsárás tengdist fjölskyldu bassaleikarans Silla Geirdal.
Þegar Stebbi tilkynnti um brottför sína sagði hann síðustu tvö og hálft ár hafa verið sér og fjölskyldu sinni afar erfið og gagnrýndi jafnframt fyrrverandi félaga sína í Dimmu.
„Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins,“ sagði Stebbi meðal annars.
Dimmumenn svöruðu honum síðar með harðorðri yfirlýsingu og höfnuðu lýsingu hans á atburðarásinni. Þar voru fullyrðingar Stebba meðal annars sagðar ósannar og þær gagnrýndar fyrir að kasta rýrð á samstarf sveitarinnar.