Óskarsverðlaunaleikkonan Nicole Kidman heimsótti Ísland á dögunum og virðist hafa hrifist bæði af landi og þjóð ef marka má færslu hennar á Instagram í gærkvöldi.
„Dásamlegt land, ferðalag lífs míns,“ sagði leikkonan. Hún þakkaði jafnframt starfsfólki lúxussiglingafyrirtækisins The Ritz-Carlton Yacht Collection fyrir góðar móttökur á fjölskyldu sinni og gestum.
„Við elskum þig Ísland,“ bætti hún svo við.
Kidman þarf vart að kynna fyrir kvikmyndaáhugafólki en hún hefur um áratugaskeið verið ein þekktasta leikkona Hollywood. Hún hlaut Óskarsverðlaunin sem besta leikkona fyrir túlkun sína á rithöfundinum Virginiu Woolf í The Hours árið 2003 og hefur alls fimm sinnum verið tilnefnd til Óskarsverðlauna.
Meðal þekktustu mynda hennar eru Moulin Rouge!, The Others, Cold Mountain og Australia. Þá hefur hún á síðari árum einnig vakið mikla athygli fyrir sjónvarpshlutverk, meðal annars í Big Little Lies.