Tinna Berg Damayanthi er 41 árs, gift, fjögurra barna móðir og kennari. Hún er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Sterk saman. Tinna var ættleidd frá Sri Lanka þriggja mánaða gömul og flutti til Þorlákshafnar. Hún á yngri bróður sem einnig var ættleiddur, fjórum árum seinna.
Þegar Tinna var átta ára ættleiddu foreldrar þeirra tólf ára dreng sem hafði átt hræðilegt líf og að mestu búið á götunni erlendis.
„Ég átti allt í einu tvo bræður, einn fjórum árum eldri og annan fjórum árum yngri.“
Fyrst til að byrja með var auðvitað spennandi að eignast systkini en fljótlega kom annað í ljós.
„Hann átti erfitt með að aðlagast umhverfinu, kunni ekki mannleg samskipti, auðvitað ekki tungumálið og hafði aldrei verið hluti af eðlilegu samfélagi.“
Einelti í grunnskóla
Grunnskólagangan var erfið fyrir Tinnu. „Mér var strítt mikið og það fór yfir í einelti líka. Í litlu samfélagi voru engir dökkir krakkar og ég var líka hávær og það fór mikið fyrir mér.“
„Ég var ekki barnið sem mamma óskaði sér.“
Uppeldið var strangt og það sem við myndum kalla andlegt ofbeldi í dag. Í dag er Tinna ekki í samskiptum við foreldra sína.
„Ég hef reynt og gert margar tilraunir til að laga samskiptin en það er fullreynt.“
Þegar Tinna var átta ára og eldri drengurinn kom inn á heimilið hófst kafli í hennar lífi sem hefur mótað hana alla daga síðan.
„Hann misnotaði mig kynferðislega í tvö ár. Mamma kom að honum að nauðga mér einu sinni og hefur viðurkennt það.“
Öðruvísi uppeldi
Á einum tímapunkti ákvað Tinna að láta þetta ekki skilgreina hana sem manneskju og stofna sjálf fjölskyldu sem hana dreymdi um að vera hluti af.
„Um leið og ég ákvað að eignast fjölskyldu vissi ég að það yrði gleði, ást og allir fengju að taka pláss og vera þeir sjálfir.“
Uppeldisaðferðir Tinnu og eiginmanns hennar eru alfarið á skjön við hennar uppeldi þar sem hún leiðir með væntumþykju, opnum örmum og rými fyrir börnin sín til að tjá tilfinningar.