Sum hjónabönd lifa lengur en önnur. Dæmi eru um að hjónabönd lifi ekki nema nokkra klukkutíma eins og nýlegt dæmi frá Bretlandi sýnir.
Breska blaðið The Mirror greinir frá þessu.
Það var einn brúðkaupsgestanna sem sagði upprunalega frá öllu saman í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit. Það er einn af vinum brúðgumans.
Framan af var brúðkaupið og veislan í kjölfarið afar hefðbundið. Hjónin sögðu „Já“ við spurningum prestsins, settu upp hringana og kysstust innilega.
En þegar líða fór á daginn og fleiri og fleiri vínglös fóru ofan í fólk byrjaði að hrikta í stoðum hins nýja hjónabands.
Allir sendir heim
Gesturinn, og sögumaðurinn, greinir frá því að brúðurin hafi tekið sérlega vel á því í drykkjunni. Hún var líka stanslaust í símanum og fékk sífelldar tilkynningar um skilaboð á samfélagsmiðlum.
Var brúðgumanum farið að finnast þetta skrýtið og grunsamlegt. Þegar hún setti símann frá sér tók hann símann upp og fann skilaboð á milli hennar og samstarfsmanns hennar. Höfðu þau verið að skiptast á kynferðislegum skilaboðum allt brúðkaupið.
Á þessum tímapunkti í veislunni var allt komið á fullt og gestirnir að tryllast á dansgólfinu. En brúðguminn gat ekki látið eins og ekkert hefði í skorist. Veislan var skyndilega stöðvuð og allir sendir heim.
Pappírum ekki skilað
Segir gesturinn að brúðhjónin hafi ekki skilað inn nauðsynlegum lagapappírum til þess að giftingin væri staðfest. Hjónabandið var því einungis gilt fyrir guði.
„Þau fóru ekki í brúðkaupsferðina og þau skiluðu öllum gjöfunum til gestanna,“ segir vinur brúðgumans.
En gestirnir fengu reyndar flestir ekkert að vita hvað hafði gerst fyrir vikum seinna. Hafði brúðurin einnig reynt að bjarga hjónabandinu en án árangurs.
Slapp fyrir horn
Fékk sagan mikla athygli á samfélagsmiðlum og flestir voru á því að þetta hefði verið kórrétt ákvörðun hjá brúðgumanum. Miðað við þetta hefði þetta hjónaband aldrei orðið langlíft hvort eð er.
„Gaurinn sparaði sér mikinn pening með því að sleppa við skilnaðinn,“ segir einn í athugasemdum við færsluna.
„Hann var fljótur að hugsa að segja þeim sem sá um athöfnina að henda pappírunum. Ég hefði verið svo reiður að ég myndi ekki hugsa svona rökrétt,“ segir annar.