Fókus

Sjaldséðar myndir af leikkonunni áratugum eftir að hún yfirgaf Hollywood

Mynd

Meira en tveir áratugir eru liðnir frá því leikkonan Bridget Fonda dró sig úr sviðsljósinu og yfirgaf Hollywood. Síðan þá hefur hún sjaldan sést opinberlega, en í vikunni var Fonda (62) mynduð þegar hún yfirgaf veitingastað með aðstoðarmanni sínum.

Mynd

Fonda er eins og nafnið gefur til kynna úr þekktri fjölskyldu, faðir hennar er leikarinn Peter Fonda, systir hans leikkonan Jane Fonda og faðir þeirra leikarinn Henry Fonda. Bridget lék í fjölda þekktra kvikmynda á árunum 1987 til 2002, má þar nefna The Godfather Part III, Single White Female, Singles, Jackie Brown og Scandal.

Mynd
Í hlutverki sínu í Single White Female.

Síðast sást til hennar í Los Angeles fyrir rúmu ári með eiginmanni sínum tónlistarmanninum Danny Elfman, þegar þau sneru heim úr ferðalagi. Það var í fyrsta skipti sem þau sáust saman í 16 ár.

Mynd
Elfman í græna bolnum.

Þau giftu sig árið 2003. Ári síðar eignuðust þau soninn Oliver, sem nú er 21 árs. Eftir að hafa hlotið hryggskaða í bílslysi ákvað Fonda að einbeita sér að því að ala upp soninn. Árið 2023 sagði Fonda við ljósmyndara að hún  myndi ekki snúa aftur í leiklistina  því það væri „of gott að vera óbreyttur borgari“.

Fonda var þó aftur komin í sviðsljósið árið 2017 þegar Elfman var sakaður um kynferðislega áreitni. Samstarfskona hans, Nomi Abadi, hélt því fram að Elfman hefði afklæðst og fróað  sér fyrir framan hana ítrekað á árunum 2015 til 2016. Hann neitaði ásökununum, en þau gerðu sátt um 830.000 dollara skaðabætur og hann höfðaði mál gegn henni fyrir meiðyrði í fyrra.

Mynd
Hjónin árið 2017.

Árið 2023 sakaði önnur kona Elfman um að hafa verið nakinn fyrir framan hana nokkrum sinnum og snert sig á meðan hún svaf við hliðina á honum á árunum 1997 til 2002. Konan höfðaði mál gegn Elfman fyrir kynbundið ofbeldi, vanrækslu, kynferðislega áreitni, kynferðislega árás og að hafa vísvitandi valdið tilfinningalegri vanlíðan. Elfman neitaði aftur öllum ásökunum. Fonda stóð við hlið eiginmanns síns í gegnum lagaleg vandamál hans.