Fókus

Hefur aldrei gift sig eða eignast börn - Ástæðan er þessi

Mynd
Allison Janney.

Leikkonan Allison Janney sér ekki eftir því að hafa aldrei eignast börn. Leikkonan, sem er 66 ára, talaði opinskátt um að hafa aldrei gifst eða eignast börn í við tali við Monicu Lewinsky  í þætti hennar Reclaiming With Monica Lewinsky. Janney viðurkenndi að hún hefði hugsað um hjónaband og sagði að hún hefði farið til frjósemissérfræðings á fertugsaldri.

„Ég hélt alltaf að ég myndi giftast, bara vegna þess að á þeim tíma sem ég var að alast upp, þá var það það sem maður gerði,“ sagði Janney.

Hún rifjaði upp að þegar hún flutti til New York til að stunda leiklistarferil sinn  átti hún langtímakærasta sem, líkt og hún, vildi ekki eignast börn. Þegar hún var hins vegar í fjögurra ára sambandi um þrítugt sagðist hún hafa talið að nú væri kominn tími til að eignast börn.

„Og þá varð mér ljóst að þetta var ekki maðurinn sem ég vildi eignast börn með,“ sagði hún. „Svo ég hugsaði með mér: „Ókei, þetta gerðist ekki.“

Janney segir að á sama tíma hafi henni verið létt

„Það hvernig þér líður í sambandi sem þú veist að er líklega ekki það eina rétta og þú ert í því og veist ekki hvernig á að komast út úr því, það er einmanalegasta tilfinningin í heiminum að vera með einhverjum og finnast maður einmana,“ sagði hún. „Ég vissi að ég vildi aldrei eignast börn. Það er bara eitthvað sem ég hef alltaf vitað.“

Mynd
Monica Lewinsky og Janney.

Samt sagði hún að á fertugsaldri hefði henni fundist að hún ætti að reyna og fór til frjósemislæknis sem sagði henni berum orðum að líkurnar á að hún yrði þunguð væru ekki miklar.

„Fyrsta skiptið sem ég heyrði að ég gæti ekki eignast barn á fertugsaldri var á stofu frjósemislæknis. Hún sagði bara: „Líkurnar eru ekki þér í hag,“ sagði Janney og viðurkenndi að hún hefði talið að konur gætu auðveldlega eignast börn á fimmtugsaldri.

Frjósemislæknirinn spurði Janney hvar maki hennar væri. „Og gaurinn sem ég var með, hann kom ekki einu sinni með mér og ég hugsaði með mér: „Ég geri ráð fyrir að það sé merki, er það ekki?“

Janney sagði að sanna ástin í lífi sínu, auk vina sinna og fjölskyldu, væru hundarnir hennar.

„Dýr, sérstaklega hundar, eru mér hjartans mál. Ég gæti ekki elskað hunda meira.“

Janney hefur haldið einkalífi sínu tiltölulega leyndu. Hún var í sambandi með leikaranum Dennis Gagomiros frá 1994 til 2001 og var áður trúlofuð Richard Jenik, meðleikara sínum úr Our Very Own, en þau slitu tveggja ára trúlofun sinni árið 2006. Hún var síðast tengd framleiðslustjóranum Philip Joncas, sem hún hitti við tökur á myndinni The Way Way Back árið 2013, en þau slitu fimm ára sambandi sínu árið 2017.

Janney ræddi einnig hjónaband og barneignir í The Drew Barrymore Show í apríl 2021.

„Ég er virkilega að læra að vita hver ég er og hvað ég vil,“ sagði hún. „Ég myndi elska að finna einhvern til að deila lífi mínu með, en ef það gerist ekki, þá er það allt í lagi.“

Hún sagði einnig um ákvörðun sína að eignast ekki börn: „Ég myndi frekar vilja sjá eftir því að eiga ekki börn heldur en að eiga börn og sjá eftir því. Ég er sátt við það.“