Fókus

Þessar bækur lásu landsmenn í júlí

Mynd

Bók Gyrðis Elíassonar, Ótíð í víti, situr í efsta sæti Bóksölulista Fé­lags ís­lenskra bóka­út­gef­enda fyr­ir júlí­mánuð. Bókin var í öðru sæti listans í  júní. 

Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda, segir þetta ágæta áminningu til höfunda, þýðenda og útgefenda um mikilvægi fjölbreyttrar bókaútgáfu allt árið um kring.

Mynd

Sé listinn skoðaður þá eru 10 þýddar erlendar skáldsögur á honum og fimm íslenskar. Tvær útivistarbækur, krossgátubók Morgunblaðsins, ein barnabók og síðast en ekki síst sjöunda bók Sævar Helga Bragasonar í bókaflokknum Vísindalæsi um Sólmyrkva.

Mynd