„Þegar eitthvað svona gerist í fjölskyldu, þá snertir það alla,“ segir fyrirsætan Kaia Gerber í forsíðuviðtali Vogue um áralanga baráttu bróður síns, Presley við fíkniefnadjöfulinn.
„Ég held að þetta sé líka ástæðan fyrir því að ég fór að skilgreina mig sem þá auðveldu af okkur systkinunum og vildi aldrei biðja um hjálp. Vegna þess að mér fannst of mikið að eiga tvö börn sem þurftu á hjálp að halda,“ bætti hún við.
Frægir foreldrar þeirra, ofurfyrirsætan Cindy Crawford og Rande Gerber, stofnandi Casmaigos tequila, hafa ætíð haldið einkalífinu frá sviðsljósinu, en Kaia segist stolt af því hvernig Presley, 27 ára, tókst á við vandamál sín opinberlega.
„Við höfum þennan algjöra kennara, bróður minn, sem segir: „Ég ætla að vera mjög mannlegur fyrir alla.“ Það er takmarkað hvað maður getur falið fyrir heiminum,“ sagði Kaia. „Og að reyna að fela eitthvað fær viðkomandi bara til að finnast maður skammast sín fyrir viðkomandi,“ bætti Kaia við.
Frá árinu 2019 hefur Presley verið í fréttum fyrir baráttu sína við vímuefnaneyslu og andlega heilsu. Presley var aðeins 19 ára gömul þegar hann var handtekinn fyrir ölvunarakstur eftir að hafa verið stöðvaður fyrir hraðakstur í Beverly Hills í Kaliforníu. Í júlí 2019 var hann ákærður fyrir minniháttar brot og var dæmdur í þriggja ára skilorðsbundið fangelsi, samfélagsþjónustu og endurhæfingarprógramm.
Árið 2024 tilkynnti Presley að hann hefði glímt við alvarlega, margra ára ópíóíðafíkn og fengið nær banvænan ofskammt af fentanýli sem skildi hann eftir í dái í nokkra daga.
Presley sagði að hann væri að skrá sig inn á meðferðarstöð til að gangast undir meðferð með íbógaíni, sýkedelíska meðferð sem talið er að gagnist við vímuefnaneyslu og áfallastreituröskun.
Í desember árið 2024 opinberaði Presley að hann væri háður lyfseðilsskyldum lyfjum eftir að hafa leitað til yfir 15 mismunandi geðlækna sem að sögn gáfu honum mikið af lyfjum án þess að gefa honum skipulagða leiðsögn um bata. Í sama mánuði staðfesti Presley að hann hefði verið edrú í fimm mánuði og tók fram að hann hefði hætt að drekka í júlí 2025.
Endurtaka fræga forsíðu foreldranna
Kaia deilir forsíðu Vogue með Homer Gere en þau leika saman í þáttunum The Shards sem nú eru sýndir á Netflix. Gere er sonur leikarans Richard Gere, og má segja að Kaia og Homer taki við forsíðukeflinu af frægum foreldrum sínum.
Móðir Kaiu er eins og áður sagði ofurfyrirsætan Cindy Crawford, sem var gift Richard Gere frá 1991 til 1995, sátu Cindy og Richard saman á forsíðu Vogue árið 1994.
Cindy giftist síðan föður Kaiu og Presley, Rande Gerber, árið 1998 og Richard giftist móður Homer, Carey Lowell, árið 2002.
Kaia fetaði í fótspor móður sinnar í fyrirsætuheiminum aðeins tíu ára gömul og þykir hún afar lík heimsfrægri móður sinni. Homer er hins vegar fyrst núna að kynnast Hollywood sem leikari.