Fókus

Aðdáendur hafa áhyggjur af Jennu Ortega: „Hvað er eiginlega í gangi?“

Mynd

Leikkonan Jenna Ortega, sem er hvað þekktust fyrir að fara með aðalhlutverkið í Netflix-þáttunum Wednesday, hefur vakið mikla athygli eftir að nýtt myndbandsviðtal við hana birtist á dögunum.

Ortega, sem er 23 ára, ræddi feril sinn í viðtali við Esquire en útlit hennar varð fljótlega að helsta umræðuefninu á samfélagsmiðlum. Fjöldi aðdáenda lýsti þar yfir áhyggjum af því hversu grönn leikkonan virtist vera.

Sumir báru Ortega saman við söngkonuna Ariönu Grande, sem hefur sjálf verið mikið til umræðu að undanförnu vegna útlits síns.

Í viðtalinu rifjaði Ortega meðal annars upp reynslu sína af því að starfa sem barnaleikkona. Hún hóf feril sinn ung að árum og sagði að á tökudögum hefði stundum verið svo mikið að gera að heill dagur gat liðið án þess að hún borðaði eða drykki.

Ummælin vöktu athygli í ljósi umræðunnar sem skapaðist um útlit hennar.

„Hvað er eiginlega í gangi með allar þessar stjörnur sem virðast vilja verða sífellt grennri og veikburða? Þetta er mjög mikið áhyggjuefni,“ skrifaði einn aðdáandi.

Útlit Ortega hefur breyst nokkuð undanfarin tvö ár og höfðu svipaðar áhyggjur þegar komið fram í maí, eftir að myndir af henni frá viðburði tengdum Wednesday birtust opinberlega.

Svipuð umræða hefur skapast í kringum Ariönu Grande að undanförnu. Nýtt tónlistarmyndband hennar við lagið Petal, sem kom út 31. júlí, varð til þess að margir aðdáendur lýstu yfir áhyggjum af söngkonunni.

Grande hefur síðan tilkynnt að hún hyggist draga sig úr sviðsljósinu um tíma þegar Eternal Sunshine-tónleikaferð hennar lýkur.