Fókus

„Nýr Hafþór“ kemur frá Brasilíu og dregur milljónir að kraftasportinu

Mynd

Keppnin Sterkasti maður Íslands var haldin á Selfossi um síðustu helgi. Myndbönd frá keppninni hafa fengið milljóna áhorf, ekki síst í Brasilíu. Ástæðan var sú að brasilíska kraftastjarnan Wiliam „Bitello“ Piowezan tók þátt sem gestakeppandi í réttstöðulyftu. Margir álíta að Bitello sé hinn nýi Hafþór en vel fer á með þeim félögum eins og sjá má í myndbandi hér.

Í keppninni tók Bitelo 420 kg í réttstöðulyftu og jafnaði Hafþór.

Kristján Jón Haraldsson bar sigur úr býtum í keppninni en Hafþór var í öðru sæti. Hafþór hefur áður sigrað í keppninni 11 sinnum í röð en hann tók sér hlé frá henni síðustu árin á meðan hann einbeitti sér að hnefaleikum.